Hoppa yfir valmynd
22. maí 2024 Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

Framkvæmdanefnd skoðaði aðstæður í Grindavík

Framkvæmdanefnd fær leiðsögn við varnargarða við Grindavík. - mynd

Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ kynnti sér aðstæður í Grindavík í gær. Nefndarfólk skoðaði ummerki eftir jarðhræringar í bænum sjálfum með fulltrúum Almannavarna og hitti starfsfólk sem vinnur m.a. að því að tryggja öryggi á svæðinu og við uppbyggingu varnargarða við bæinn.

Undirbúningur að starfi nefndarinnar er hafinn í góðri samvinnu við bæjaryfirvöld í Grindavík og stjórnvöld sem unnið hafa að viðbragði vegna jarðhræringanna. Nefndin tekur þó ekki formlega til starfa fyrr en 1. júní nk. samkvæmt lögum sem Alþingi samþykkti nýlega. 

Framkvæmdanefndin fundaði einnig í gær með bæjarstjórn Grindavíkur, stýrihópi Stjórnarráðsins um málefni Grindavíkur, Ríkislögreglustjóra, Almannavörnum, Veðurstofu Íslands og fulltrúum ýmissa annarra stjórnvalda. Árni Þór Sigurðsson, Guðný Sverrisdóttir og Gunnar Einarsson munu sitja í framkvæmdanefndinni og verður Árni Þór formaður.

Þjónustuteymi sett á fót

Stjórnvöld hafa samþykkt að setja á fót nýtt þjónustuteymi til að tryggja áframhaldandi samþættan og markvissan stuðning við íbúa Grindavíkur. Í teyminu verður sérhæft starfsfólk sem mun veita ráðgjöf um atvinnuleit og virkni, húsnæði, þjónustu, skóla, tómstundir og íþróttir. Þjónustuteymið mun heyra undir framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ eftir að nefndin tekur til starfa.

Á upplýsingasíðu fyrir Grindvíkinga á Ísland.is eru mikilvægar upplýsingar um húsnæðismál, líðan, bjargráð og ýmis önnur stuðningsúrræði. Starfsemi þjónustuteymisins verður kynnt nánar síðar á upplýsingasíðunni.

  • Ummerki eftir jarðhræringar í Grindavík skoðaðar. - mynd
  • Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ fundaði með ýmsum aðilum í gær en það er hluti af undirbúningi nefndarinnar áður en hún tekur formlega til starfa 1. júní nk. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum