Hoppa yfir valmynd
2. október 2015 Forsætisráðuneytið

37. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög
  3. Önnur mál

Fundargerð

37. fundur – haldinn föstudaginn 2. október 2015, kl. 13.00, í Safnahúsinu, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Einar Hugi Bjarnason, nýskipaður fulltrúi Framsóknarflokksins, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar og Valgerður Bjarnadóttir. Valgerður Gunnarsdóttir hafði boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 36. fundar, sem haldinn var mánudaginn 28. september 2015, var samþykkt án athugasemda.

2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög

Farið var yfir fyrirliggjandi textadrög og rætt um þau atriði sem enn er skoðanamunur um. Formaður mun stýra úrvinnslu á þeim athugasemdum sem fram komu, eftir atvikum í samvinnu við sérfræðingahópa, og leita málamiðlunar.

3. Önnur mál

RM ítrekar bókun sína frá 26. fundi, þar sem hann lýsti furðu sinni á því að ekki hafi verið gengið frá skipun hans í nefndina. Sá langi dráttur sem á því hafi orðið sé óviðunandi og til þess fallinn að raska starfi nefndarinnar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19.00.

SG ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum