Hoppa yfir valmynd
13. desember 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 514/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 514/2022

Þriðjudaginn 13. desember 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 25. október 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 12. ágúst 2022 um að samþykkja umsókn hennar um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 1. ágúst 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn 9. ágúst 2022 sótti kærandi um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með syni sínum frá 1. maí 2021. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 12. ágúst 2022, var milliganga um meðlagsgreiðslur með barni hennar samþykkt frá 1. ágúst 2021.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. október 2022. Með bréfi, dags. 28. október 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 11. nóvember 2022, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kæranda hafi með úrskurði Sýslumannsins á B, dags. 9. ágúst 2022, verið úrskurðað meðlag eitt ár aftur tímann frá og með 12. maí 2021. Kærandi hafi fengið greitt aftur í tímann frá 1. ágúst 2021 sem sé ekki rétt þar sem í úrskurðinum komi fram 12. maí 2021. Farið sé fram á að þetta verði leiðrétt.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun frá 12. ágúst 2022 um greiðslu meðlags aftur í tímann. Kærandi hafi sótt um greiðslu meðlags frá 1. maí 2021 með umsókn 9. ágúst 2022 en með bréfi, dags. 12. ágúst 2022, hafi henni verið tilkynnt um að samþykkt hefði verið að greiða henni meðlag frá 1. ágúst 2021.

Ágreiningur málsins lúti að því hvort Tryggingastofnun ríkisins hafi verið heimilt að samþykkja einungis greiðslur meðlags frá 1. ágúst 2021 en ekki fyrr.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Í 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, segi að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga. Í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar segi enn fremur að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. ekki við.

Í 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar segi að heimilt sé að setja reglugerð um framkvæmd greinarinnar. Það hafi verið gert með reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga.

Samkvæmt 7. gr. reglugerðarinnar segi að Tryggingastofnun sé aðeins heimilt að greiða meðlag í allt að 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem gögn samkvæmt 5. gr. berist stofnuninni.

Kærandi hafi sótt um meðlag frá og með 1. maí 2021 með umsókn 9. ágúst 2022. Með umsókn hafi fylgt meðlagsúrskurður Sýslumannsins á B, dags. 9. ágúst 2022, þar sem meðlagsgreiðandi hafi verið úrskurðaður til þess að greiða kæranda meðlag með barni þeirra frá 16. maí 2021 til 18 ára aldurs. Þann 9. ágúst 2022 hafi því öll nauðsynleg gögn borist svo að Tryggingastofnun gæti tekið ákvörðun um umsókn um meðlag. Samkvæmt 7. gr. reglugerðarinnar, sbr. 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar, hafi Tryggingastofnun því einungis verið heimilt að greiða kæranda meðlag 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem öll nauðsynleg gögn vegna umsóknar hafi borist, þ.e. frá 1. ágúst 2021.

Í ljósi alls framangreinds sé það niðurstaða stofnunarinnar að afgreiðsla á umsókn kæranda, þ.e. að samþykkja greiðslur meðlags til kæranda frá 1. ágúst 2021, sé rétt. Sú niðurstaða sé byggð á faglegum sjónarmiðum sem og gildandi lögum og reglum.

Tryggingastofnun fari því fram á að ákvörðun frá 12. ágúst 2022 um að samþykkja greiðslur meðlags frá 1. ágúst 2021 verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 12. ágúst 2022 um upphafstíma milligöngu meðlagsgreiðslna til kæranda. Kærandi óskar eftir að fá milligöngu meðlagsgreiðslna frá 12. maí 2021.

Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003. Samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laganna er Tryggingastofnun heimilt að greiða meðlag allt að 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. laganna ekki við. Reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga hefur verið sett með stoð í 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar.

Af ákvæði 63. gr. laga um almannatryggingar leiðir að Tryggingastofnun ber að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur þegar beiðni berst frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Heimild Tryggingastofnunar til að greiða meðlag samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laganna er takmörkuð við 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem meðlagsákvörðun berst stofnuninni.

Samkvæmt úrskurði Sýslumannsins á B, dags. 9. ágúst 2022, skal barnsfaðir kæranda greiða meðlag með dóttur þeirra frá 16. maí 2021 til 18 ára aldurs. Í kjölfar framangreinds úrskurðar óskaði kærandi eftir greiðslum í samræmi við úrskurðarorð. Milliganga Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur hefur verið samþykkt frá 1. ágúst 2021.

Tímabilið, sem kærandi fer fram á milligöngu meðlagsgreiðslna, er umfram þá 12 mánuði aftur í tímann sem heimilt er að greiða samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar. Það er mat úrskurðarnefndar velferðarmála að stofnuninni sé því ekki heimilt að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til kæranda á því tímabili sem kærandi óskar eftir, sbr. 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar. Engin heimild er í lögum til þess að greiða meðlag lengra en 12 mánuði aftur í tímann.

Úrskurðarnefndin telur rétt að benda kæranda á að hún geti freistað þess að sækja greiðslu meðlags úr hendi barnsföður síns samkvæmt almennum reglum kröfuréttar. Samkvæmt 66. gr. barnalaga má gera fjárnám fyrir meðlagi á grundvelli dóms, dómsáttar eða úrskurðar. Kæranda er því bent á að hún geti leitað aðfarar til tryggingar kröfu sinni á hendur barnsföður sínum í samræmi við lög nr. 90/1989 um aðför.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 12. ágúst 2022 um upphafstíma milligöngu um meðlagsgreiðslur til kæranda.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma milligöngu um meðlagsgreiðslur til A, er staðfest.

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum