Hoppa yfir valmynd
19. maí 2009 Dómsmálaráðuneytið

Alls þreyta 205 íslenskupróf fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt

Alls munu 205 útlendingar þreyta íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt sem haldin verða í fyrsta sinn 8.-12. júní nk.

Alls munu 205 útlendingar þreyta íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt sem haldin verða í fyrsta sinn 8.-12. júní nk. eftir breytingu þar að lútandi á lögum um íslenskan ríkisborgararétt sem tóku gildi 1. janúar sl.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið samdi við Námsmatsstofnun um að annast undirbúning og framkvæmd prófanna. Íslenskupróf skal að jafnaði halda eigi sjaldnar en tvisvar á ári og ráðgert er að halda þau næst í nóvember eða desember nk.

Sjá nánar í nýútkomnu vefriti dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum