Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Aukin sálfræðiþjónusta fyrir námsmenn

Forgangsraðað verður í þágu geðheilbrigðismála og aukinn stuðningur veittur í verkefni sem tengjast líðan barna og ungmenna sem lið í áframhaldandi efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19. Sálfræðiþjónusta í framhaldsskólum verður efld, sem og þverfagleg skólaheilsugæsla í grunnskólum. Aukið verður við sálfræðistuðning á vettvangi háskólanna.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra:

„Aðgerðir stjórnvalda stuðla að víðtækri uppbyggingu, við erum á réttri leið. Eitt brýnasta verkefnið fyrir framtíðarheill okkar samfélags er þó að treysta grunninn og tryggja að börn og ungmenni fái skilvirkan stuðning og þjónustu. Margar fjölskyldur glíma við flókin úrlausnarefni og við leitum leiða til þess að mæta þeim, meðal annars með því efla geðheilbrigðisþjónustu fyrir námsmenn. Við þurfum að sinna hug og hjarta til þess að geta vaxið í öðrum verkefnum – þetta er góð fjárfesting fyrir okkur öll.“

Ráðgert er að veita allt að 150 milljónum kr. í viðbótarframlag til geðheilbrigðismála í framhalds- og háskólum. Fjármagnið dreifist milli háskóla og framhaldsskóla eftir þörfum, með sérstakri áherslu á skóla á landsbyggðinni með það að markmiði að auka jafnt aðgengi nemenda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum