Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 27/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 23. janúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 27/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120002

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 3. desember 2018 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. nóvember 2018, um að synja honum um dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki, sbr. 62. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af greinargerð kæranda má ráða að hann krefjist þess að hinn kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi hér á landi.

Fyrrgreind ákvörðun var kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk útgefið dvalar- og atvinnuleyfi hér á landi vegna skorts á starfsfólki þann 8. apríl 2016 með gildistíma til 14. febrúar 2017. Fékk hann dvalarleyfið endurnýjað tvisvar, nú síðast með gildistíma til 5. desember 2018. Þann 21. nóvember 2018 var dvalarleyfi kæranda afturkallað með ákvörðun Útlendingastofnunar á grundvelli þess að Vinnumálastofnun hefði afturkallað atvinnuleyfi hans þann 11. júlí 2018. Kærandi sótti á ný um dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki þann 4. september sl. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. nóvember 2018, var umsókn kæranda synjað. Umboðsmanni kæranda var tilkynnt um ákvörðunina þann 26. nóvember sl. og þann 3. desember sl. kærði kærandi ákvörðunina. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 7. desember 2018.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var vísað til þess að samkvæmt b-lið 1. mgr. 62. gr. laga um útlendinga sé það forsenda fyrir útgáfu dvalarleyfis vegna skorts á starfsfólki að áður hafi verið gefið út atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. nóvember 2018, hafi kæranda verið synjað um atvinnuleyfi. Væri stofnuninni því ekki heimilt að veita kæranda dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki og var umsókn hans því synjað.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að honum hafi verið synjað um atvinnuleyfi af Vinnumálastofnun þar sem hann hafi hafið störf áður en hann fékk útgefið atvinnuleyfi. Sé kærandi núna með nýja umsókn hjá Vinnumálastofnun sem sé í ferli þar. Þá hafi hann dvalið og starfað hér á landi síðan 2016. Að framangreindu virtu telji kærandi það því bersýnilega ósanngjarnt að honum sé synjað um dvalar- og atvinnuleyfi og óskar eftir því að ákvörðun Útlendingastofnunar verði endurskoðuð.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 62. gr. laga um útlendinga er fjallað um heimildir til útgáfu dvalarleyfis vegna skorts á starfsfólki. Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 1. mgr. 62. gr. laganna eru m.a. þau að útlendingur fullnægi grunnskilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna, sbr. a-lið 1. mgr. 62. gr., og að tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á starfsfólki hafi verið veitt á grundvelli laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. b-lið 1. mgr. 62. gr. laga um útlendinga.

Í ákvæði 1. mgr. 52. gr. laga um útlendinga er mælt svo fyrir um að Útlendingastofnun taki ákvörðun um veitingu dvalarleyfis en Vinnumálastofnun um veitingu atvinnuleyfis. Af ákvæðinu er ljóst að ákveðin verkaskipting er milli Útlendingastofnunar annars vegar og Vinnumálastofnunar hins vegar. Er hlutverk Útlendingastofnunar m.a. fólgið í að kanna hvort skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfis samkvæmt umsókn þar að lútandi séu fyrir hendi í samræmi við ákvæði laga um útlendinga á meðan Vinnumálastofnun annast m.a. framkvæmd laga atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002, þ.m.t. hvort útlendingi skuli veitt atvinnuleyfi. Samkvæmt gögnum málsins er ljóst að Vinnumálastofnun synjaði kæranda um atvinnuleyfi með ákvörðun, dags. 2. nóvember 2018. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að þeirri ákvörðun hafi verið hnekkt þrátt fyrir að kærandi hafi sótt um atvinnuleyfi að nýju. Kærandi uppfyllir því ekki ófrávíkjanlegt skilyrði b-liðar. 1. mgr. 62. gr. laga um útlendinga fyrir veitingu dvalarleyfis vegna skorts á starfsfólki. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar því staðfest.

Samkvæmt framangreindu hefur kærandi ekki dvalarleyfi hér á landi. Kæranda er því ekki heimil áframhaldandi dvöl hér á landi og ber honum að yfirgefa landið innan 15 daga frá móttöku úrskurðarins. Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frestsins kann að vera heimilt að brottvísa honum, sbr. a-lið 1. mgr. og a-lið 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                       Anna Valbjörg Ólafsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum