Hoppa yfir valmynd
28. nóvember 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 524/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. nóvember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 524/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18100030

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. október 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. október 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. og 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 11. maí 2018. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 22. ágúst 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 12. október 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 16. október 2018 og kærði kærandi ákvörðunina samdægurs til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 1. nóvember 2018, auk fylgiskjals. Óskaði kærandi eftir því að fá að tjá sig við nefndina um efni málsins og að sálfræðivottorðs yrði aflað til að leggja mat á heilsufar hans. Taldi kærunefnd gögn málsins ekki gefa til kynna nauðsyn þess að afla sálfræðivottorðs í máli hans. Þá taldi nefndin ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun sinni komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í málinu lægi fyrir að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og dvalarleyfi með gildistíma til 9. janúar 2021.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var komist að þeirri niðurstöðu að 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur aftur til Grikklands. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var mat stofnunarinnar að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ætti ekki við í máli kæranda. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Þá kom fram að kærandi skyldi fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi verið í Grikklandi í níu mánuði og dvalið þar í flóttamannabúðum við bágar aðstæður. Kærandi kveður að hann hafi orðið fyrir tveimur líkamsárásum meðan á dvöl hans í Grikklandi hafi staðið og í fyrra skiptið hafi honum verið [...]. Í kjölfarið hafi hann upplifað útskúfun í flóttamannabúðunum þar sem litið hafi verið niður á hann sem þolanda [...]. Hann hafi verið hræddur og orðið fyrir miklu aðkasti en öryggisverðir í búðunum hafi haft öðrum hnöppum að hneppa og ekki getað fylgst með erjum milli íbúanna. Þá kveður kærandi að almenningi í Grikklandi standi á sama um innflytjendur, þeir vilji ekki hjálpa þeim og líti á þá sem einskis virði.

Kærandi kveður að hann sé brotinn og hræddur og eigi við vandamál að stríða, þ. á m. svefnvandamál. Hann verði hræddur þegar hann hitti menn sem séu eldri en hann og óttist að fólk í kringum hann tali illa um hann. Þá hafi hann verið greindur með [...] og sæki virka sálfræðimeðferð á [...] auk ráðgjafar hjá [...] og [...].

Kærandi gerir í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, einkum umfjöllun stofnunarinnar um réttindi kæranda í Grikklandi og beitingu 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Vísar kærandi í því sambandi m.a. til lögskýringargagna að baki lögum um útlendinga og úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 199/2018 frá 24. apríl 2018.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð byggir kærandi m.a. á því að aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks á Grikklandi séu bágar. Vísar kærandi í því sambandi m.a. til þess að samkvæmt áralangri stjórnsýsluframkvæmd hafi íslensk stjórnvöld ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þá vísar kærandi til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (mál nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011. Heimildir beri með sér að staða flóttafólks á Grikklandi sé engu betri en staða umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þá hafi sú vernd sem flóttafólk eigi rétt á, lögum samkvæmt, á Grikklandi ekki verið virt í framkvæmd.

Þá byggir kærandi á því að sérstakar ástæður séu uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Um sérstakar ástæður vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna að baki lögum um útlendinga og lögum nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga. Á stjórnvöldum hvíli rík skylda til að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir hann, líkamlegar og andlegar. Kærandi hafi verið metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, en Útlendingastofnun hafi ekki fallist á beiðni hans um öflun sálfræðivottorðs. Kærandi hafi sótt sálfræðimeðferð hjá sálfræðingi á [...], vikulega síðan um miðjan júlí og því fyrirfinnist ítarlegri upplýsingar um andlega heilsu hans en komi fram í framlögðum gögnum. Með tilliti til fyrirliggjandi upplýsinga úr viðtali við kæranda hjá Útlendingastofnun og komunótna frá Göngudeild sóttvarna leggi kærandi áherslu á, fyrir kærunefnd, að ítarlegri gagna verði aflað um andlega heilsu hans. Kærandi sé [...] ára gamall og hafi mátt þola gróft ofbeldi á flótta frá heimaríki og meðan á dvöl hans í Grikklandi hafi staðið. Frásögn hans og fyrirliggjandi heimildir sýni fram á skelfilegar aðstæður hans í Grikklandi, þ. á m. yfirfullar flóttamannabúðir og skert réttindi flóttafólks þar. Þá standi kærandi frammi fyrir því að verða fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi vegna stöðu sinnar þar. Vísar kærandi í því sambandi til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og 552/2017, frá 10. október 2017, og nr. 583/2017 og 586/2017, frá 24. október 2017. Í framangreindum málum hafi nefndin komist að þeirri niðurstöðu að taka umsóknir kærenda, sem hafi verið með alþjóðlega vernd í Búlgaríu eða Ungverjalandi, til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum séu aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna í Grikklandi síður en svo betri en í Búlgaríu eða Ungverjalandi.

Þá vísar kærandi, kröfu sinni til stuðnings, til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 392/2018 frá 27. september sl. Í málinu hafi verið um að ræða fjölskyldu með alþjóðlega vernd í Grikklandi, sem hafi samanstaðið af þremur ungum börnum, þungaðri móður og föður barnanna. Að mati kærunefndar hafi fjölskyldan verið í viðkvæmri stöðu og staða þeirra í Grikklandi kæmi til með að verða verulega síðri en staða almennings þar, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Því hafi borið að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi kveður að margt sé líkt með framangreindu máli og hans eigin máli. Hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu og muni eiga erfitt uppdráttar í Grikklandi vegna fordóma og mismununar gagnvart flóttafólki þar í landi. Þá fái framburður hans stuðning í fjölmörgum heimildum um aðstæður í Grikklandi. Kærandi byggi á því að hann muni verða fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi og staða hans þar muni verða verulega síðri en almennings, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Því séu sérstakar aðstæður uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá byggir kærandi á því, kröfu sinni til stuðnings, að aðstæður í Grikklandi séu með þeim hætti að hann muni verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð þar, í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Endursending kæranda til Grikklands myndi vera brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 3. mgr. 36. gr. og 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi í því sambandi jafnframt til 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna.

Meðal framlagðra gagna kæranda eru komunótur frá Göngudeild sóttvarna, vottorð frá [...], [...] og [...], svo og [...] og lögregluskýrsla frá Grikklandi. Þá lagði kærandi fram ljósmyndir af áverkum á líkama sínum og flóttamannabúðum í Grikklandi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 8. september 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 9. janúar 2021. Eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar aftur til ríkisins sem hefur veitt honum slíka vernd, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Verður kærunefnd því að leggja mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar. Þá þarf að líta til stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Meta verði fyrirsjáanlegar afleiðingar af því að vísa einstaklingi til móttökuríkis í ljósi almennra aðstæðna í ríkinu og persónulegra aðstæðna viðkomandi einstaklings.

Greining á hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Kærandi er einhleypur og barnlaus [...] ára gamall karlmaður. Kærandi kvað í viðtölum hjá Útlendingastofnun, dags. 15. maí og 22. ágúst 2018, að hann glímdi við kvíða, ofsóknaræði, svefnörðugleika, streitu, óþol gagnvart hávaða, ótta og reiði og hafi m.a. verið ávísað [...]. Þá hafi hann sótt sálfræðitíma hér á landi og í Grikklandi. Kærandi kvað að hann hafi orðið fyrir árás með eins konar eggvopni, [...] og barsmíðum í Grikklandi og lögregluofbeldi í Tyrklandi. Í framlögðum komunótum kæranda frá Göngudeild sóttvarna og gögnum frá Grikklandi kemur m.a. fram að honum hafi verið ávísað ýmsum [...] og sefandi [...]. Þá verður ráðið af komunótu læknis, dags. 15. júní sl., að kærandi sýni einkenni [...]. Líkt og áður greinir lagði kærandi fram vottorð frá [...], , [...] og [...], um sálfræðiþjónustu og viðtöl sem hann hafi sótt þangað.

Líkt og fram hefur komið er kærandi ungur að árum. Þá var hann metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að byggja á því mati. Kærandi telst því í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015) og
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í ofangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að fullnægja lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans. Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 fjallaði dómstóllinn um endursendingar einstaklinga til ríkja þar sem þeir hafa hlotið alþjóðlega vernd. Í ákvörðuninni kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við slíka endursendingu nái ekki alvarleikastigi 3. gr. sáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Kærunefnd tekur ekki undir það sjónarmið kæranda að áralöng stjórnsýsluframkvæmd íslenskra stjórnvalda, um að heimila ekki endursendingar til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, eigi við í máli hans. Ljóst er að kærandi er handhafi alþjóðlegrar verndar þar í landi og því komi slík endursending ekki til skoðunar í máli hans. Þá verður tekið fram, vegna tilvísunar kæranda til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (mál nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, að það er mat kærunefndar að ólíku sé saman að jafna hvað varðar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi og einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Kemur framangreind frásögn kæranda að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi sem kærunefnd hefur kynnt sér, þ.e. hvað varðar erfitt aðgengi að vinnumarkaðnum, félagslegu húsnæði og framfærslu frá yfirvöldum. Þá liggur fyrir að kærandi er ungur að árum en óumdeilt er að hann var fullorðinn þegar hann kom til Íslands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur aðgang að vinnumarkaðnum í Grikklandi og á sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Í ljósi frásagnar kæranda af ofbeldi sem hann hefur orðið fyrir og gagna sem hann hefur lagt fram fær kærunefnd ekki séð af framangreindum gögnum að kerfisbundið [...] viðgangist í Grikklandi í skjóli refsileysis. Má jafnframt ráða af framlögðum gögnum kæranda frá Grikklandi og framangreindum upplýsingum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af framburði kæranda og framlögðum gögnum frá Grikklandi, svo og gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður þar, verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum og sálfræðiaðstoð. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og 552/2017, frá 10. október 2017, nr. 583/2017 og 586/2016, frá 24. október 2017, og nr. 392/2018, frá 27. september 2018. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í síðastgreinda málinu í ljósi einstaklingsbundinna aðstæðna þeirra, einkum þar sem um var að ræða börn, og að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í fyrstgreindum úrskurðum vegna þess að ekki er um að ræða sama viðtökuríki.

Samkvæmt framansögðu er kærandi ungur að árum þótt hann hafi verið fullorðinn við komu til landsins. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það þó mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 22. ágúst 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 11. maí 2018.

Athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir þar um. Þá hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars sl., voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að kærandi telji að skilyrði reglugerðarinnar varðandi sérstakar ástæður séu mun þrengri en kveðið sé á um í athugasemdum með frumvarpi sem varð að lögum um útlendinga nr. 80/2016 og úrskurðum kærunefndar.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 11. maí 2018 og sótti um alþjóðlega vernd samdægurs. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal                                                       Árni Helgason

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum