Hoppa yfir valmynd
7. október 2022 Utanríkisráðuneytið

Birgðastöð UNICEF afgreitt 480 þúsund tonn af hjálpargögnum á árinu

Ljósmynd: UNICEF - mynd

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fagnar þessa dagana 60 ára afmæli alþjóðlegu birgðastöðvar sinnar í Kaupmannahöfn. Um er að ræða stærsta mannúðarvöruhús í heiminum sem sér um dreifingu lífsbjargandi hjálpargagna til verkefna UNICEF um allan heim.

„Þörfin fyrir mannúðaraðstoð fyrir börn hefur aldrei verið meiri og starfsemi alþjóðlegu birgðastöðvar UNICEF því aldrei mikilvægari,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Í okkar huga er besta leiðin til að halda upp á þessi tímamót sú að auka enn við verkefni okkar til að ná að dreifa mikilvægum hjálpargögnum til allra barna sem aðstoða þau að lifa af neyðarástand hvar sem það skapast. UNICEF er stjórnvöldum og íbúum Danmerkur afar þakklátt fyrir mikilvægt starf og stuðning í þágu verkefna UNICEF og erum við full bjartsýni fyrir næstu 60 ár af því samstarfi.“

Það sem af er þessu ári hafa 480 þúsund tonn af hjálpar- og neyðargögnum verið send frá vöruhúsinu í Kaupmannahöfn. Þar af rúmlega 1.400 vöruflutningabílar með rúmlega 10.400 tonn af hjálpargögnum vegna stríðsins í Úkraínu.

„Það var magnað að sjá með eigin augum hversu tæknilegt vöruhúsið er, hversu mikil nýsköpun fer þar fram og hversu hratt er hægt að bregðast við þegar neyðarástand skapast,“ segir Steinunn Jakobsdóttir kynningarstjóri UNICEF á Íslandi sem heimsótti birgðastöðin í Kaupmannahöfn á dögunum. „Á þeim stutta tíma sem ég var þarna þá var verið að pakka allskyns vörum til að senda til Pakistan, Afganistan og Afríkuhornsins. Þarna er unnið hratt og skipulega allan sólarhringinn, alla daga til að bregðast við aukinni eftirspurn eftir lífsnauðsynlegum hjálpargögnum fyrir börn í neyð. Hjálpargögnum sem meðal annars fólk hér á landi hefur tryggt börnum með kaupum á Sönnum gjöfum, sem Heimsforeldrar eða með stuðningi við neyðarsafnanirnar okkar, og færum við þeim öllum hjartans þakkir.“

Birgðastöðin hóf starfsemi sína árið 1962 og voru skrifstofur og vöruhúsið – sem í dag er stærsta mannúðarvöruhús veraldar – gjöf frá dönskum stjórnvöldum til UNICEF á sínum tíma.

Nánar á vef UNICEF

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

1 Engin fátækt
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum