Hoppa yfir valmynd
29. mars 2010 Utanríkisráðuneytið

Afhending trúnaðarbréfs á Möltu

Bjarni Jónsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf á Möltu
Afhending_trunadarbrefs_a_Moltu

Þann 25. þ.m. afhenti Benedikt Jónsson, sendiherra, Dr. George Abela, forseta Möltu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Möltu, með aðsetri í London. Að lokinni afhendingu átti sendiherra fund með forsetanum og embættismönnum hans. Forsetinn lýsti yfir mikilli ánægju sinni með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og sagði ríkisstjórn Möltu styðja umsóknina heilshugar. Sérstaklega væri litið til þess að Ísland væri rótgróið evrópskt lýðræðisríki og möguleg aðild Íslands styrkti sambandið. Forsetinn hvatti til áframhaldandi samráða Íslands og Möltu á meðan aðildarferlinu stæði og væru Maltverjar mjög fúsir til þess að deila með Íslendingum reynslu sinni af aðild að sambandinu.

Sendiherra átti einnig fundi með háttsettum embættismönnum í utanríkisráðuneyti Möltu þar sem tvíhliða samskipti ríkjanna voru rædd sem og samstarf ríkjanna á marghliða vettvangi, sérstaklega Evrópusamstarfið. Í þeim umræðum útskýrði sendiherra stöðu mála varðandi umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og stöðu efnahagsmála á Íslandi, samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, og viðræður Íslendinga, Breta og Hollendinga varðandi Icesave.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum