Hoppa yfir valmynd
16. júlí 2013 Innviðaráðuneytið

Endurskoðuð drög að reglugerð um eldsneytisáfyllingu loftfara til umsagnar

Innanríkisráðuneytið óskar eftir umsögnum um endurskoðuð drög að reglugerð um eldsneytisáfyllingu loftfara. Umsagnarfrestur er til 6. ágúst næstkomandi og skulu umsagir berast á netfangið [email protected].

Í endurskoðuðum drögum hefur verið tekið tillit til margra þeirra athugasemda sem bárust við fyrri drög sem kynnt voru til umsagnar þann 8. janúar síðastliðinn.

Þannig er ákvæði 2. gr. breytt á þann veg að þar sem ekki er til að dreifa flugvallarhandbókum eða sérreglum á öllum flugvöllum er nú gert ráð fyrir því að fylgja skuli fyrirmælum flugvallarhandbókar og sérreglum þjónustuaðila eldsneytis eftir því sem við á ef þeim er til að dreifa.

Einnig hefur verið brugðist við athugasemdum sem bárust varðandi geymslu eldsneytissýna, skv. 19. gr. reglugerðardraganna, og gera þau nú ráð fyrir því að eingöngu þurfi að varðveita sýni á flugvöllum sem sinna farþegaflugi. Eftir sem áður er gerð krafa um sýnatöku og skráningu á niðurstöðum á öllum flugvöllum enda mikilvægt að gæði eldsneytis séu trygg. Þá er í nýjum drögum tekinn af allur vafi um að ábyrgðaraðili loftfars ber ábyrgð á að meta hættu, sbr. 1. mgr 11. gr. reglugerðardraganna, um áfyllingu með farþega um borð.

Vakin er athygli á því að greinanúmerin á nýjum drögum hafa breyst frá því að fyrri drög voru lögð fram til samráðs auk þess sem Samgöngustofa hefur leyst Flugmálastjórn af hólmi, sbr. lög nr. 119/2012, með áorðnum breytingum.

Nýja reglugerðin mun fella úr gildi reglugerð nr. 282/1980 um eldsneytisáfyllingu loftfara en sú reglugerð er um margt úrelt eða ófullnægjandi þar sem ekki er tekið á fjölmörgum þáttum eldsneytisáfyllingar sem nauðsynlegt er að taka á. Þannig er nú í drögunum kveðið á um áhættustjórnun, ábyrgðaraðila, gæðakerfi, handbækur og verklag, þjálfun starfsmanna, sýnatöku og geymslu þeirra, geymslu gagna og eftirlit. Þá eru ítarlegri ákvæði um flesta aðra þætti sem kveðið var á um í eldri reglum.

Ekki er að finna samræmdar evrópureglur á þessu sviði þó að einstök ákvæði sé þó að finna í samræmdum reglum um flugrekstur, sbr. reglugerð nr. 48/2012 sem innleiðir reglugerð ESB nr. 1008/2008 um sameiginlegar reglur um flugrekstur og flugþjónustu innan Evrópska efnahagssvæðisins. Einnig er að finna nokkur ákvæði í reglugerð um almannaflug flugvéla nr. 694/2010 og reglugerð um flugvelli nr. 464/2007.

Að mestu er í drögunum um nýmæli að ræða en flest ákvæði gömlu reglugerðarinnar er þó þar enn að finna. Byggt er að miklu leyti á fyrirmynd í bresku loftferðarlögunum (Air Navigation Order, 217 gr.) og bresku eldsneytisreglunum (CAB 748 Aircraft Fuelling and Fuel Installation Management). Einnig var höfð hliðsjón af dönsku BL 3-6 Bestemmelser om tankning af luftfartøjer, tankningspersonale/tankningstjeneste og tankningsanlæg.

Unnið er að viðauka 19 við Chicago sáttmálann hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) en nokkur tími er í að þeirri vinnu ljúki. Drög að viðaukanum liggja fyrir en þar er gert ráð fyrir að samræmdar verði reglur um geymslu, meðferð og áfyllingu eldsneytis sem hluta af gæða- og öryggisstjórnunarkerfum (Quality Assurance and Safety Managment Systems, SMS). Í viðaukanum verða sameinaðar kröfur og tilmæli varðandi gæða- og öryggisstjórnun sem nú þegar er að finna í öðrum viðaukum, s.s. viðaukum 6, 11 og 14. Byggist efnið að verulegu leyti á IATA leiðbeiningunum (Guidelines for Aviation Fuel Quality Control and Operating Procedures) en flest flugfélög styðjast nú við leiðbeiningar IATA og hafa gert þær skuldbindandi í samningum við þjónustuaðila. Horft var til draga að viðaukanum við samningu reglugerðarinnar.

Reglugerðin mun taka til meðferðar geymslu og áfyllingar eldsneytis innan flugvallar og til tækjabúnaðar en þar er að mestu vísað í kröfur framleiðenda búnaðar auk þess sem vísað er til ADR reglna (reglugerð nr. 1077/2010 um flutning á hættulegum farmi) um merkingar eldsneytisbifreiða.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum