Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2013 Innviðaráðuneytið

Framlög til jöfnunar á tekjutapi sveitarfélaga vegna fasteignaskatts

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá því í júní að áætluðu uppgjöri framlaga til sveitarfélaga á árinu 2013 til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts á grundvelli reglugerðar, nr. 80/2001, með síðari breytingum.

Útreikningur framlaganna byggir á upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts í sveitarfélögum 31. desember 2012 sem gilda fyrir árið 2013. Tekið er mið af álagningarprósentum fasteignaskatts í sveitarfélögum á árinu 2013.

Endurskoðað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna á árinu nemur samtals um 3.149,5 m.kr. og komu um 60% af áætluðu framlagi ársins til greiðslu mánuðina febrúar til júní eða samtals um 1.877,2 m.kr. Uppgjör framlaganna, sem nemur 1.272,3 m.kr., fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september,  424,1 m.kr. í hvert sinn.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum