Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Auglýst aftur

Matsnefnd leggur til að auglýst verði að nýju eftir framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Í október var auglýst eftir framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga og kom fram í auglýsingunni að leitað væri eftir einstaklingi með háskólapróf sem auk þess hefði reynslu af stjórnun, fjármálaumsýslu og áætlanagerð. Þá var og sett skilyrði um að framkvæmdastjóri skyldi vera fær í mannlegum samskiptum. Þrír sóttu um embættið. Einn þótti ekki uppfylla skilyrði um háskólapróf, tveir þóttu uppfylla skilyrði auglýsingar samkvæmt framlögðum gögnum, en matsnefndinni þótti eðlilegt, m.a. í ljósi þess að umsækjendur voru aðeins þrír, að auglýst yrði aftur.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum