Hoppa yfir valmynd
17. október 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Forstjóri Lyfjastofnunar lætur af störfum

Lyfjastofnun
Lyfjastofnun

Rannveig Gunnarsdóttir forstjóri Lyfjastofnunar, hefur óskað eftir því að láta af störfum 1. febrúar á næsta ári. Heilbrigðisráðherra hefur fallist á þá beiðni og verður embættið auglýst laust til umsóknar innan skamms.

Rannveig Gunnarsdóttir hefur verið forstjóri Lyfjastofnunar allt frá því að stofnunin var sett á fót með lögum árið 2000. Áður var Rannveig skrifstofustjóri lyfjanefndar ríkisins í fjögur ár, en lyfjanefnd ríkisins og lyfjaeftirlit ríkisins voru forverar Lyfjastofnunar.

Verkefni Lyfjastofnunar eru tilgreind í lyfjalögum en þau felast meðal annars í mati á gæðum og öryggi lyfja, lyfjaeftirliti og eftirliti með lækningatækjum, upplýsingagjöf fyrir heilbrigðisstéttir og almenning og neytendavernd.

Heilbrigðisráðherra skipar forstjóra Lyfjastofnunar til fimm ára í senn samkvæmt lyfjalögum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum