Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samkomulag um móttöku flóttamanna næstu tvö árin

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanrikisráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, undirrita samkomulag um samstarf við móttöku flóttafólksFélags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, og utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hafa undirritað samkomulag um móttöku flóttafólks og fjármögnun flóttamannaverkefna á þessu og næsta ári. Greiðir utanríkisráðuneytið kostnað við móttöku flóttafólks næstu tvö árin, allt að 80,25 milljónir króna í ár og 100 milljónir króna árið 2009.

Kostnaður felst í ferðakostnaði flóttafólksins til Íslands og þjónustu og aðstoð við fólkið á fyrstu tólf mánuðum dvalar þess á Íslandi. Þá telst til kostnaðar ferðakostnaður þriggja til fjögurra manna sendinefndar sem fer hverju sinni til þess lands sem hefur veitt flóttafólki hæli og tekur viðtöl við einstaklinga og fjölskyldur sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna leggur til að komi til Íslands.

Félags- og tryggingamálaráðuneytið sér um framkvæmd verkefnisins og gerir samning við það sveitarfélag sem hverju sinni tekur að sér þjónustu og aðstoð við flóttafólkið fyrsta dvalarárið í samræmi við viðmiðunarreglur flóttamannanefndar. Félags- og tryggingamálaráðuneytið sér einnig um að gera samning við Rauða kross Íslands sem hefur umsjón með samskiptum við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, stuðningsfjölskyldur og fleira.

Samstarf ráðuneytanna fer fram á vettvangi flóttamannanefndar sem hefur meðal annars það verkefni að leggja til við ráðherra utanríkismála og félags- og tryggingamála að tekið verði á móti tilteknum hópi flóttafólks frá tilteknu landi. Stefnt skal að því að taka á móti hópi að jafnaði á hverju ári.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum