Hoppa yfir valmynd
2. september 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 75/2019 Úrskurður 2. september 2019

Mál nr. 75/2019                     Aðlögun kenninafns: Dönudóttir

                                            

 

Hinn 2. september 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 75/2019.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 19. ágúst 2019, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx um að eiginnafn móður, Danute, verði lagað að íslensku máli og að móðurkenning verði Dönudóttir.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á móðurkenninguna Dönudóttir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum