Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2020 Matvælaráðuneytið

Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins

Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC), sá 39. í röðinni, var haldinn í gegnum fjarfundabúnað dagana 10.-13. nóvember. Ráðið fer með stjórn fiskveiða utan lögsagna ríkja á Norðaustur-Atlantshafi. Bretar gerðust nýlega aðilar að ráðinu eftir útgöngu sína úr Evrópusambandinu, en auk þeirra eru aðilar NEAFC Danmörk (varðandi Færeyjar og Grænland), Evrópusambandið, Ísland, Noregur og Rússland. Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (ANR) fór fyrir íslensku sendinefndinni á fundinum. Í sendinefndinni voru, auk fulltrúa ANR, fulltrúar utanríkisráðuneytisins, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunar, og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Af hálfu Íslands var lögð áhersla á að stöðva veiðar á karfa á Reykjaneshrygg. Fyrir lá ráðgjöf frá Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES) um að engar veiðar skyldu stundaðar sökum alvarlegs ástands stofnanna, en slík ráðgjöf hefur verið gefin út af ICES síðan 2016. Undanfarin ár hefur ekki náðist samkomulag um að stöðva veiðarnar og veldur því helst andstaða Rússa sem ekki viðurkenna mat ICES á stöðu þessara karfastofna. Ísland lagði ásamt Danmörku (vegna Færeyja og Grænlands) fram tillögu um að engar veiðar verði heimilaðar 2021, sambærilegri við tillögu Íslands undanfarin ár. Í fyrsta skipti tókst að fá samþykkt hjá NEAFC að karfaveiðar á Reykjaneshrygg skuli stöðvaðar, eftir áralanga áherslu fulltrúa Íslands í þessu sambandi, en íslenskum skipum var ekki heimilað að taka þátt í þessum veiðum 2020 vegna stöðu karfastofnanna. Tillagan var samþykkt þrátt fyrir andstöðu Rússa og hjásetu ESB. Líklegt er að Rússar mótmæli stjórnuninni og haldi veiðum sínum áfram, en hinir aðilar NEAFC munu þrýsta á þá að fylgja NEAFC stjórnuninni og þar með vísindaráðgjöf ICES.

Ekki liggur fyrir samkomulag strandríkja varðandi veiðar úr deilistofnunum síld, kolmunna og makríl. Því var ekkert samþykkt á fundinum annað en að ríkin skyldu setja sér takmarkanir og öðrum en aðildarríkjum væri óheimilt að veiða á stjórnunarsvæði NEAFC. Varðandi makríl var engin samþykkt gerð, þar sem fulltrúar strandríkja hafa ekki lokið viðræðum sínum vegna veiða árið 2021. Auk þessa voru samþykktar stjórnunarráðstafanir fyrir úthafið varðandi langhala, ýsu á Rockall banka, karfa í Síldarsmugunni, ýmsa háfa og nokkra aðra fiskistofna.

NEAFC heldur áfram að vinna brautryðjendastarf sem fyrsta svæðisbundna fiskveiðistjórnunarstofnunin í heiminum sem tekur upp rafrænt upplýsingakerfi þar sem upplýsingar frá veiðiskipum eru sendar beint úr rafrænum afladagbókum til fánaríkis og þaðan til NEAFC. Eftirlitsmenn aðildarríkja fá síðan aðgang að þeim gögnum auk þess sem þau verða aðgengileg vísindamönnum.  Vinna við útfærslu kerfisins heldur áfram og er stefnt að því að kerfið verði tekið í notkun fljótlega.

NEAFC er einnig leiðandi á heimsvísu í vernd viðkvæmra botnvistkerfa, svo sem kórala og svampa, og í stjórn veiða á djúpsjávartegundum. Stjórnunarreglum NEAFC í þessu sambandi var lítillega breytt á fundinum.

Janet Nørregaard frá Færeyjum var kjörinn forseti NEAFC og fögnuðu fulltrúar Íslands sérstaklega þeim tímamótum að hún verði fyrsta konan sem gegnir því embætti.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum