Hoppa yfir valmynd
10. maí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 248/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 10. maí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 248/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23030069

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 17. mars 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Sýrlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. febrúar 2023, um synja beiðni hennar um dvalarleyfi fyrir foreldra hér á landi. Hinn 22. febrúar 2023 var kæranda tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Ákvörðun Útlendingastofnunar var send til umboðsmanns kæranda með ábyrgðarpósti 16. febrúar 2023. Umboðsmanni kæranda var send rafræn tilkynning 22. febrúar 2023 og var afhending bókuð þann sama dag. Umboðsmaður kæranda kærði ákvörðunina 17. mars 2023. Ljóst er að kærufresturinn, sem var til 9. mars 2023, var liðinn þegar kæran barst.

Með tölvubréfi til kæranda, dags. 23. mars 2023, óskaði kærunefnd eftir skýringum á því hvers vegna kæra hafi borist utan frests. Í tölvubréfi frá kæranda, dags. sama dag, kemur fram að lögmaður hans hafi ekki haft tíma til að kæra ákvörðunina.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar skal m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Ákvörðun Útlendingastofnunar var tilkynnt umboðsmanni kæranda 22. febrúar 2023. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist of seint. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að ekki verði talið að taka beri kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

Telji kærandi sig uppfylla skilyrði laga um útlendinga um dvalarleyfi bendir kærunefnd henni á að sækja um dvalarleyfi að nýju hjá Útlendingastofnun. Með þessum leiðbeiningum er kærunefnd þó ekki að taka afstöðu til þess hvernig slík umsókn verði afgreidd.


 

Úrskurðarorð:

 

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá.

 

The applicants appeal of the decision of the Directorate of Immigration is dismissed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Sandra Hlíf Ocares                                                                         Gunnar Páll Baldvinsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum