Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 201/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 24. apríl 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 201/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18020031

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. febrúar 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...] vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. janúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Grikklands.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga. Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju, með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 28. september 2017. Kærandi mætti m.a. til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 5. október 2017 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 22. janúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Grikklands. Ákvörðun var birt fyrir kæranda þann 30. janúar 2018. Kærandi kærði ákvörðunina þann 12. febrúar 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 26. febrúar 2018 ásamt fylgigögnum. Þá bárust kærunefnd umbeðnar upplýsingar frá grískum stjórnvöldum þann 9. apríl 2018 um dvalarleyfi kæranda þar í landi. Þann 10. apríl 2018 bárust athugasemdir kæranda við nýjum upplýsingum í málinu.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun sinni komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í málinu lægi fyrir að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Grikklandi og hann hafi verið með gilt dvalarleyfi í landinu með gildistíma til 14. október 2017.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var komist að þeirri niðurstöðu að 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur aftur til Grikklands. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var einnig mat stofnunarinnar að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ætti ekki við í máli kæranda. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Þá frestaði kæra réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að móðir hans hefði skipt um trú fyrir 20 árum og hann væri því alinn upp í [...]. Kvaðst kærandi hafa upplifað ofsóknir af þeim sökum í heimaríki. Stjórnvöld í [...] hafi fylgst með honum öllum stundum og hafi hann bæði verið beittur andlegu og líkamlegu ofbeldi vegna trúar sinnar. Þá hafi hann nokkrum sinnum verið handtekinn í heimaríki fyrir að iðka trú sína. Í nokkrum tilvikum hafi honum verið haldið föngnum í einn mánuð í senn en í önnur skipti einungis verið ógnað. Einnig hafi hann orðið fyrir margskonar ofbeldi í varðhaldi. Kærandi kvaðst m.a. í eitt skipti hafa verið afklæddur og sleginn með járnstöng í höfuð og bak, þá hafi verið talað niður til hans með ljótum orðum ásamt því að hann hafi verið neyddur til að standa í heilan dag, handjárnaður bæði á höndum og fótum. Eftir þennan atburð kvaðst kærandi hafa verið svo illa farinn andlega og líkamlega að hann hafi lagst inn á spítala í viku. Þá hafi hann ætlað að flýja land en verið handtekinn og dvalið í fangelsi í sex mánuði áður en hann hafi verið leiddur fyrir dómara sem hafi kveðið upp dauðadóm yfir honum vegna trúar hans. Í kjölfarið hafi kærandi flúið heimaríki sitt árið 2009. Kærandi greindi frá því, aðspurður um líkamlegt heilsufar, að honum hafi verið illt í bakinu í um fimm mánuði og að verkirnir komi og fari. Þá líði honum andlega illa, annars vegar vegna þeirra atburða sem áttu sér stað í heimaríki sínu og hins vegar vegna dvalar sinnar í Grikklandi og aðstæðna hans þar.

Aðspurður um aðstæður sínar í Grikklandi kvaðst kærandi gera athugasemdir við að vera sendur þangað aftur. Þar hafi hann dvalið í 3-4 ár en hann hafi komið þangað árið 2012 og ástandið hafi verið mjög erfitt. Hann hafi ekki fyrr en að ári liðnu, eða árið 2013, geta formlega sótt um alþjóðlega vernd og þá hafi hann að því loknu hvorki fengið húsaskjól né fjárhagsaðstoð heldur heldur hafi þurft að reiða sig á aðstoð frá hjálparstofnunum, kirkjum, Rauða krossinum og sofið í tómum byggingum. Hann hafi síðar farið til Rhodos þar sem hann hafi unnið við ólífutínslu. Í október 2014 hafi hann síðan hlotið alþjóðlega vernd og fengið útgefið dvalarleyfiskort. Aðstæður hans hafi ekki breyst í kjölfarið, flóttamenn í Grikklandi hafi engin réttindi, erfitt sé að fá vinnu, ekkert húsnæði að fá og erfitt sé að aðlagast samfélaginu. Þá séu lögreglumenn reiðir í Grikklandi og vísir til að ráðast á hann. Kærandi kvaðst einnig upplifa fordóma frá almenningi og hafi fólk t.d. sleppt stórum hundi inn í húsið sem hann hafi sofið í.

Kærandi bendir á að samkvæmt gögnum málsins hafi honum verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 14. október 2014 með gildistíma til 14. október 2017. Það liggi því ljóst fyrir að kærandi sé ekki með gilt leyfi til dvalar í landinu og Útlendingastofnun hafi því ekki verið stætt að ganga út frá því að kærandi hafi virka vernd í Grikklandi við töku ákvörðunar í málinu. Vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 424/2016 máli sínu frekar til stuðnings. Útlendingastofnun hafi því borið rík skylda til að ganga úr skugga um að kærandi njóti enn virkrar verndar í Grikklandi áður en að ákvörðun hafi verið tekin með vísan til 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga.

Þá er í greinargerð gerð grein fyrir ýmsum atriðum er varðar aðstæður, aðbúnað og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og er í því sambandi vísað til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Þar komi m.a. fram að vegna landfræðilegrar legu hafi Grikkland þurft að bera þungan af straumi flóttafólks frá Afríku- og Mið-Austurlöndum síðastliðin ár, þrátt fyrir að vera það Evrópuríki sem hafi ef til vill verið einna síst í stakk búið til að taka á móti slíkum fjölda fólks vegna þeirrar efnahags- og stjórnmálakreppu sem hafi haft mikil áhrif á landið. Í skýrslum komi meðal annars fram að fordómar og mismunun viðgangist gagnvart flóttamönnum í Grikklandi. Þá sé félagslegt húsnæði eða annar stuðningur ekki í boði fyrir flóttamenn þar í landi. Samkvæmt handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna geti einstaklingur hafa sætt meðferð sem í sjálfu sér jafngildi ekki ofsóknum en sé samtvinnuð öðru mótlæti. Þegar mismunandi þættir séu teknir saman sem ein heild við slíkar aðstæður geti einstaklingur rökstutt með skynsamlegum hætti staðhæfingar um ástæðuríkan ótta við ofsóknir. Þá geti mismunun, t.d. á grundvelli kynþáttar, jafngilt ofsóknum brjóti hún gegn grundvallarmannréttindum.

Kærandi byggir á því að samkvæmt gögnum málsins virðist sem fella megi mál kæranda undir a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en kærandi telji það ótækt og taka eigi mál hans til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna við ákvæðið. Þá kveði 1. mgr. 36. gr. laganna einungis á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja kæranda um efnismeðferð umsóknar sinnar en ekki skyldu. Í athugasemdum við 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga komi fram að einstaklingar sem séu í viðkvæmri stöðu falli undir ákvæðið. Þessi vilji löggjafans sé enn frekar staðfestur í athugasemdum við ákvæði til bráðabirgða við lög um útlendinga, sbr. lög nr. 81/2017, þar sem fram komi að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann teljist vera einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi ákvæðisins, hann hafi m.a. verið fórnarlamb alvarlegra pyndinga af hálfu stjórnvalda í heimaríki sem hafi haft mikil andlega áhrif á hann ásamt þeim óviðunandi aðstæðum sem hann hafi búið við í Grikklandi. Þá bendir kærandi á nýlega úrskurði kærunefndar um að bregðast skuli sérstaklega við vísbendingum um að einstaklingar hafi orðið fyrir pyndingum eða öðrum mannréttindabrotum, sbr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar jafnframt máli sínu til stuðnings til úrskurða kærunefndar útlendingamála, nr. 550/2017, 552/2017, 583/2017 og 586/2017. Kærandi bendi á að ljóst sé að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna einstaklingsbundinna aðstæðna hans.

Af hálfu kæranda er einnig byggt á því að vegna aðbúnaðar og aðstæðna hans í Grikklandi myndi endursending þangað brjóta gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. einnig 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda verði að einblína á það hvort viðkomandi einstaklingur sé í hættu á illri meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Með vísan til þess sem rakið hafi verið um aðstæður viðurkenndra flóttamanna í Grikklandi sé ljóst að aðstæður þeirra séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. sáttmálans.

Til stuðnings varakröfu kæranda, um að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju, vísar kærandi til þess að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga þar sem stofnunin hafi ekki rannsakað nægjanlega réttarstöðu kæranda í Grikklandi, viðkvæma stöðu hans og þeirrar staðreyndar að ekki var brugðist við vísbendingum um pyndingar með virkjun ákveðinna verkferla, sbr. fyrri úrskurði kærunefndar.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðlega vernd í Grikklandi og hafði hann gilt dvalarleyfi til 14. október 2017. Til að kanna nánar réttarstöðu kæranda í Grikklandi hafði kærunefnd samband við grísk stjórnvöld og kom fram í svari þeirra að ákvörðun um endurnýjun dvalarleyfis hans hafi verið tekin í máli kæranda og væri gildistími þess frá 15. október 2017 til 15. október 2020. Kærandi hafi verið látinn vita með tölvupósti þann 3. október 2017. Liggur þannig fyrir að kærandi hefur hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í Grikklandi og eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar aftur til ríkisins sem hefur veitt honum slíka vernd, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Verður kærunefnd því að leggja mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. mannréttindasáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Meta verði fyrirsjáanlegar afleiðingar af því að vísa einstaklingi til móttökuríkis í ljósi almennra aðstæðna í ríkinu og persónulegra aðstæðna viðkomandi einstaklings.

Greining á sérþörfum sbr. 25. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var ekki metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans hjá Útlendingastofnun. Af gögnum um heilsufar frá Göngudeild sóttvarna, dags. 23. október 2017 – 8. desember 2017, má m.a. ráða að kærandi hafi leitað þangað vegna verkja í baki. Þá hafi kærandi, í viðtali hjá hjúkrunarfræðingi, greint frá mikilli streitu og erfiðum hugsunum og var honum í kjölfarið vísað til sálfræðings. Af gögnunum má sjá að kærandi hafi hitt sálfræðing í eitt skipti.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda fær kærunefnd ekki séð að aðstæður hans séu þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • 2016 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 3. mars 2017);
  • Freedom in the Wold 2017 – Greece (Freedom House, 1. september 2017);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece, (Solidarity Now, mars 2016);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðum: http://www.doctorswithoutborders.org/country-region/greece, https://www.kitrinoshealthcare.com/ og http://ec.europa.eu/echo/field-blogs/photos/basic-health-care-refugees-greece_en.

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Samkvæmt ofangreindum skýrslum hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar til Grikklands síðan árið 2009. Þá hefur stofnunin fjallað um slæm áhrif efnahagshrunsins á aðstæður í landinu og möguleika viðurkenndra flóttamanna á að aðlagast grísku samfélagi. Ljóst er að þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og eru stundum í raun félagslega útilokaðir. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til heilbrigðisþjónustu og félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd samkvæmt lögum frá 2016 rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu sem getur þó verið í sumum tilvikum vandkvæðum bundið að sækja. Jafnframt eru til staðar frjáls félagasamtök sem aðstoða þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi við að kynna sér réttindi sín. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna ekki lagst gegn flutningi þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd til Grikklands.

Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Grikklandi hefur efnahagshrunið haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins þar sem fjárskortur hefur m.a. leitt af sér skort á túlkaþjónustu fyrir innflytjendur. Ljóst er af ofangreindum gögnum að það getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í landinu.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að fullnægja lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar að þó svo að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki sáttmálans sé slíkt eitt og sér ekki fullnægjandi til að uppfylla grundvallarkröfu um þann alvarleika sem 3. gr. sáttmálans geri kröfu um, þ.e. þar sem ekki sé um að ræða sérstaklega sannfærandi mannúðaraðstæður sem mæli gegn flutningi einstaklings, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013. Af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er ljóst að aðstæður kæranda sem einstaklings með alþjóðlega vernd í Grikklandi, að því leyti sem þær lúta að skorti á húsnæði og fjárhagslegum stuðningi frá grískum yfirvöldum, verða ekki taldar til ómannlegrar og vanvirðandi meðferðar í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar, þegar horft er til aðstæðna einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi og aðstæðna kæranda í heild sinni, að kærandi eigi ekki í yfirvofandi hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Grikklandi í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verði hann sendur þangað. Það er því niðurstaða kærunefndar að endursending kæranda til Grikklands feli ekki í sér brot á 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga, eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Aðstæður kæranda hafa áður verið raktar. Þá hefur frásögn kæranda af aðstæðum sínum í Grikklandi þegar verið lýst en kemur hún að mestu leyti heim og saman við framangreindar heimildir um aðstæður flóttamanna og þeirra sem hafa fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi, þ.e. einstaklingar eiga oft á tíðum í erfiðleikum með að fá atvinnu, aðstoð frá félagsmálayfirvöldum og eiga almennt erfitt með að aðlagast samfélaginu.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur sömu réttindi og grískir ríkisborgarar og aðrir sem hafa rétt til dvalar í landinu. Í framangreindum gögnum kemur jafnframt fram að stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að stemma stigu við fordómum í landinu, m.a. með því að grípa til hertra aðgerða til að sporna við brotum sem byggjast á kynþáttafordómum. Þá er það mat kærunefndar að kærandi geti leitað sér verndar aðstoðar yfirvalda í Grikklandi óttist hann að á honum verði brotið. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að fyrir hendi sé ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Grikklandi eiga þeir sem hefur verið veitt alþjóðleg vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu sem getur þó verið í sumum tilvikum vandkvæðum bundið að sækja. Samkvæmt grískum lögum eiga þeir rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, lyfjum, rannsóknum á göngudeildum og aðgangi að sjúkrahúsi. Jafnframt skulu þeir sem hafa sérþarfir fá sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Þá veita ýmis hjálparsamtök flóttamönnum heilbrigðisþjónustu, svo sem Rauði krossinn og Læknar án landamæra.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins og skýrslur og upplýsingar um aðstæður á Grikklandi. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi slíkar sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 5. október 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 28. september 2017.

Í greinargerð kæranda er til rökstuðnings kröfu hans vísað til úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 í málum nr. 550/2017 og 552/2017 og frá 24. október 2017 nr. 583/2017 og 586/2017, þar sem fallist var á kröfur kærenda, sem áður höfðu hlotið viðbótarvernd í Búlgaríu og Ungverjalandi, að taka umsókn þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að aðstæður hans séu sambærilegar þeim sem voru uppi í fyrrgreindum tveimur málum þar sem nefndin komst að þeirri niðurstöðu að kærendur gætu átt erfitt uppdráttar í viðtökuríkjum sökum mismununar vegna kynþáttar og aðstæðna þeirra sem einstaklinga með viðbótarvernd. Kærunefnd byggði þá niðurstöðu sína á heildstæðu mati á aðstæðum þeirra og fyrirliggjandi gögnum um stöðu einstaklinga sem hlotið höfðu alþjóðlega vernd í Búlgaríu og Ungverjalandi. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í fyrrgreindum málum. Kemur þar m.a. til skoðunar að aðstæður flóttamanna í Grikklandi teljast ekki nægilega sambærilegar aðstæðum í Búlgaríu og Ungverjalandi.

Reglur stjórnsýsluréttar – Athugasemd við ákvörðun Útlendingastofnunar

Til stuðnings varakröfu kæranda vísar kærandi m.a. til þess að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Í umfjöllun í greinargerð kæranda er bent á óljósa réttarstöðu hans í Grikklandi, rannsókn á viðkvæmri stöðu hans og að ekki hafi verið brugðist við vísbendingum um pyndingar með virkjun ákveðinna verkferla.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Það er mat kærunefndar að Útlendingastofnun hafi borið að kanna nánar réttarstöðu kæranda í Grikklandi. Vísar kærunefnd í því sambandi einkum til úrskurðar kærunefndar frá 14. nóvember 2016, nr. 445/2016. Kærunefnd telur að rannsókn stofnunarinnar í málinu hafi ekki verið í samræmi við 10. stjórnsýslulaga. Eftir að málið var tekið til meðferðar hjá kærunefnd hafði nefndin samband við grísk stjórnvöld eins og að framan greint og þar sem réttarstaða kæranda þar í landi var könnuð. Í tölvupósti frá grískum stjórnvöldum komu fram upplýsingar sem kærunefnd telur varpa fullnægjandi ljósi á stöðu kæranda. Kærunefnd hefur því bætt úr þeim annmarka sem var á rannsókn stofnunarinnar í máli kæranda. Í ljósi niðurstöðu kærunefndar í máli kæranda telur kærunefnd ljóst að framangreindir annmarkar á rannsókn stofnunarinnar hafi ekki haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Í ljósi þess að nú hafi verið bætt úr annmarkanum sé ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda varðandi mat á viðkvæmri stöðu kæranda og að ekki hafi verið brugðist við vísbendingum um pyndingar tekur kærunefnd fram að við meðferð máls kæranda hjá stofnuninni lágu fyrir komunótur frá Göngudeild sóttvarna, dags. 23. október 2017 til 8. desember 2017. Auk þess var kærandi í viðtali hjá stofnuninni spurður um heilsufar sitt, um atburði sem áhrif hafi haft á heilsu hans, honum leiðbeint um þýðingu þess að leggja fram læknisfræðileg gögn og honum veittur frestur til þess að leggja fram slík gögn. Þá var kærandi ítarlega spurður út í atburði í heimaríki hans þar sem hann kveðst hafa verið pyndaður. Það er mat kærunefndar, í ljósi þeirra heilsufarsupplýsinga sem lágu fyrir við töku ákvörðunar í málinu og þeirra leiðbeininga sem kæranda voru veittar, að ekki sé unnt að fullyrða að stofnuninni hafi borið að afla frekari gagna þar um. Kærunefnd útlendingamála hefur farið yfir öll gögn varðandi mál kæranda og komist að þeirri niðurstöðu að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga að þessu leyti. Er það afstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að slíkur ágalli hafi verið á rökstuðningi niðurstöðu ákvörðunar Útlendingastofnunar þannig að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                                                Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum