Hoppa yfir valmynd
13. maí 2022

Þjónusta á kjördag

Þjónusta á kjördag - myndHaraldur Jónasson / Hari

Hvar á ég að kjósa?

Hér á eftir er tilgreint hvar kjósendur geta leitað almennra upplýsinga á kjördag, svo sem um kjörskrá og atriði er lúta að framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna laugardaginn 14. maí 2022.

Landskjörstjórn

Landskjörstjórn veitir upplýsingar frá klukkan 8:30 að morgni til klukkan 22 að kvöldi. Símanúmer eru 545-9050, 545-9070 og 830-5800. Einnig má hafa samband með tölvupósti á [email protected]

Þjóðskrá Íslands

Þjóðskrá Íslands verður með símavakt á kjördag, frá klukkan 09 að morgni til klukkan 22 að kvöldi. Þar verða meðal annars veittar upplýsingar um kjörskrá.
Símanúmerið er 515-5300. Einnig má hafa samband með tölvupósti á [email protected]

Þá eru velflest sveitarfélög eru með skráða kjörstaði og kjördeildir í kjörskrá Þjóðskrár Íslands. Kjósendur geta með einföldum hætti kannað hvar þeir eru skráðir á kjörskrá.

Uppfletting í kjörskrá.

Stafrænt Ísland

Stafrænt Íslands verður með vakt á kjördag ef upp koma vandamál varðandi skönnun ökuskírteinanna. Hægt er að hafa samband við Stafrænt Ísland eða með því að senda tölvupóst í netfangið: [email protected]. Einnig má hafa samband í síma 545 9126.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum