Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 673/2021 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 16. desember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 673/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21120004

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 15. apríl 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. desember 2020, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 19. apríl 2021. Þann 26. apríl 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og var þeirri beiðni hafnað með úrskurði kærunefndar þann 18. maí 2021.

Þann 24. september 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd dagana 8. desember 2021 frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og þann 10. desember 2021 frá Útlendingastofnun.

Af greinargerð kæranda má ætla að beiðni hans um endurupptöku málsins byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Beiðni kæranda um endurupptöku er byggð á því að meira en 12 mánuðir séu liðnir frá því hann sótti um alþjóðlega vernd hér á landi. Tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð og skuli því, með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 580/2017 í máli nr. KNU17090040 frá 24. október 2017 máli sínu til stuðnings.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 23. september 2020 og hefur hann ekki enn yfirgefið landið. Því eru liðnir rúmlega 12 mánuðir frá því að umsókn kæranda barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og því kemur til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þann 6. desember 2021 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Svar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra barst þann 8. desember 2021 en þar kemur m.a. fram að stoðdeild hafi borist verkbeiðni í máli kæranda þann 27. maí 2021. Þann 9. júní 2021 hafi verið hringt í kæranda, hann svarað og greint frá því að vera á spítala. Seinna sama dag hringdi læknir af geðdeild Landspítalans sem greindi frá því að kærandi hafi síðastliðna fimm daga legið þar inni. Þann 11. júní 2021 hafi kærandi komið í viðtal hjá stoðdeild og hafi honum bersýnilega liðið illa. Kærandi hafi greint frá því að vilja ekki gangast undir Covid-19 sýnatöku og ekki fara til Grikklands. Þá hafi kærandi greint frá því að vilja ekki lifa lengur. Kæranda hafi verið tjáð að vegna andlegs álags yrði ekkert aðhafst að svo stöddu. Í september 2021 hafi stoðdeild haft samband við málastjóra kæranda til að athuga með líðan hans en fram hafi komið að kærandi væri enn niðurbrotinn vegna tiltekinna atburða í heimaríki. Af svörum stoðdeildar má ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hennar hálfu við að undirbúa flutning á kæranda og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar. Þann 10. desember 2021 barst svar frá Útlendingastofnun en þar kemur fram að Útlendingastofnun hafi engar forsendur til að líta svo á að kærandi hafi tafið mál sitt á lægra stjórnsýslustigi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framangreindum upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun ber kærandi ekki ábyrgð á þeim töfum sem hafa orðið á málsmeðferð og flutningi hans. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í máli kæranda og er að mati kærunefndar ekkert sem bendir til þess að kærandi verði talinn bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknar sinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í ljósi framangreinds og samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 23. september 2020, er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

                                                                                                                                                                                                Úrskurðarorð

:

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Sandra Hlíf Ocares                                          Bjarnveig Eiríksdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum