Hoppa yfir valmynd
17. mars 2021 Utanríkisráðuneytið

Suður-Súdan aðeins skreflengd frá hungursneyð

Ljósmynd: © UNHCR/Samuel Otieno - mynd

Mannúðaráætlun fyrir Suður-Súdan var birt í gær og felur í sér lífsbjargandi stuðning við 6,6 milljónir íbúa, þar af 350 þúsund flóttamenn. Að mati stofnana Sameinuðu þjóðanna er þjóðin aðeins skreflengd frá hungursneyð en eitruð blanda af átökum, loftslagsbreytingum og COVID-19 hefur leitt til þess að matarskortur fer vaxandi í þessu yngsta þjóðríki veraldar.

Ofan í kaupið eru líkur á hrikalegum flóðum í landinu líkt og á síðustu tveimur árum. Um ein milljón íbúa varð fyrir búsifjum vegna vatnselgs bæði árin.

Samkvæmt áætluninni er fjárþörfin metin á 1,7 milljarða bandarískra dala – rúmlega 220 milljarða íslenskra króna. „Íbúar Suður-Súdan hafa aldrei fyrr staðið frammi fyrir meiri matvælaskorti og vannæringu frá því þjóðin hlaut sjálfstæði fyrir tíu árum,“ segir Jens Laerke talsmaður Samhæfingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir í mannúðarmálum (OCHA).

Að mati Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) býr um 60 prósent þjóðarinnar við sult. Stofnunin hyggst ná til fimm milljóna íbúa á næstu vikum og mánuðum. Þá kemur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) til með að styðja við bakið á 2,2 milljónum flóttamanna frá Suður-Súdan sem hafast við í fimm grannríkjum. Um 65 prósent flóttamanna eru börn.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum