Hoppa yfir valmynd
16. júní 2017 Heilbrigðisráðuneytið

Framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2017

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra
fyrir árið 2017. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um all land.

Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð
nr. 468/2014
.

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til
heilbrigðisráðherra um úthlutun úr honum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau
verkefni sem heimilt er að veita framlög til, afgreiðslu umsókna og reglur varðandi framlög.
Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um rafrænt og er umsóknarformið, ásamt nánari
upplýsingum, aðgengilegt á vef velferðarráðuneytisins.

Umsóknum ber að skila í síðasta lagi fyrir kl. 14:00 föstudaginn 14. júlí 2017.

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum