Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 470/2020 - Úrskurður

 

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 470/2020

Miðvikudaginn 20. janúar 2021

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru móttekinni 28. september 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 27. júlí 2020 um að endurreikningur tekjutengdra bóta hennar vegna ársins 2019 skyldi standa óbreyttur og ákvörðun stofnunarinnar frá 8. september 2020 þar sem umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu var synjað.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins frá 1. janúar 2019 til 31. ágúst 2019. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2019 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 181.081 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2020. Kærandi andmælti niðurstöðu endurreikningsins þann 11. júní 2020 og með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 27. júlí 2020, var kærandi upplýst um þá niðurstöðu stofnunarinnar að endurreikningurinn skyldi standa óbreyttur. Kærandi sótti um niðurfellingu framangreindrar kröfu með umsókn þess efnis, dags. 31. júlí 2020. Með ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 8. september 2020, var umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiddra bóta synjað.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. september 2020. Með bréfi, dags. 30. september 2020, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 22. október 2020, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. október 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Af meðfylgjandi ákvörðunum með kæru má ráða að kærandi óski eftir endurskoðun á ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um niðurstöðu endurreiknings og uppgjör tekjutengdra bóta á árinu 2019 og endurskoðunar á ákvörðun stofnunarinnar um að fallast ekki á niðurfellingu ofgreiðslukröfu.

Í kæru er greint frá því að kærandi hafi fengið greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun á árinu 2019 til ágústloka. Kærandi hafi fengið innheimtubréf, dags. 22. maí 2020, vegna kröfu að fjárhæð 181.081 kr. sem kærandi hafi andmælt á þeirri forsendu að við útreikninginn hafi verið stuðst við árstekjur hennar. Með andmælunum hafi kærandi sent Tryggingastofnun launaseðla sem sýni fram á að launatekjur hennar á þessu tímabili hafi verið 1.260.901 kr. en ekki 1.704.481 kr. eins og stofnunin haldi fram, en ekki hafi verið tekið tillit til þess.

Í kjölfarið hafi kærandi óskað eftir niðurfellingu á kröfunni þar sem hún sé í námi í B og hafi haft litlar tekjur á þessu ári. Umsókn hennar hafi verið hafnað með bréfi, dags. 8. september 2020. Kærð sé þessi ákvörðun Tryggingastofnunar og farið sé fram á að krafan verði felld niður.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé synjun á umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu sem hafi myndast í kjölfar uppgjörs tekjuársins 2019.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem komi fram í skattframtölum.

Á skýran hátt sé tekið fram í lögum um almannatryggingar og reglugerð nr. 598/2009 að meginreglan sé sú að Tryggingastofnun skuli innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laga um almannatryggingar sem sé svohljóðandi: „Hafi Tryggingastofnun ríkisins eða umboð hennar eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin ofgreitt bótaþega bætur samkvæmt lögum þessum skal stofnunin draga ofgreiddar bætur frá bótum sem bótaþegi síðar kann að öðlast rétt til, sbr. þó 2. mgr. Einnig á Tryggingastofnun eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin endurkröfurétt á hendur bótaþega eða dánarbúi hans samkvæmt almennum reglum.“

Undantekningu frá þessari meginreglu sé að finna í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 varðandi þær kröfur sem myndist við uppgjör tekjutengdra bóta lífeyristrygginga. Ákvæðið sé svohljóðandi: „Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.”

Kröfur þær sem deilt sé um í þessu máli séu tilkomnar vegna uppgjörs tekjuársins 2019.

Við endurmat á endurhæfingarlífeyri um miðjan janúarmánuð 2019 hafi kæranda meðal annars verið send tekjuáætlun vegna ársins 2019 þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir neinum tekjum á árinu. Á grundvelli þessarar tekjuáætlunar hafi kærandi fengið greitt frá 1. janúar 2019 til 31. maí 2019.

Við reglubundið eftirlit Tryggingastofnunar í maí 2019 hafi komið í ljós misræmi á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Skattsins. Tryggingastofnun hafi því gert tillögu að nýrri tekjuáætlun á grundvelli upplýsinga úr staðgreiðsluskrá og hafi kæranda verið sent bréf þann 14. maí 2019 þar sem tilkynnt hafi verið um hina nýju tillögu að tekjuáætlun. Samkvæmt henni hafi verið gert ráð fyrir að atvinnutekjur á árinu yrðu 620.120 kr. Ekki hafi verið gert ráð fyrir öðrum tekjum, en gert hafi verið ráð fyrir iðgjaldi í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð 24.800 kr. Kærandi hafi ekki gert athugasemdir við þessa tekjuáætlun og hafi fengið greitt í samræmi við hana á tímabilinu 1. júní 2019 til 31. júlí 2019.

Við reglubundið eftirlit Tryggingastofnunar í júlí 2019 hafi aftur komið í ljós misræmi á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Skattsins. Tryggingastofnun hafi gert tillögu að nýrri tekjuáætlun á grundvelli upplýsinga úr staðgreiðsluskrá og hafi kæranda verið sent bréf þann 10. júlí 2019 þess efnis. Samkvæmt nýju tekjuáætluninni hafi verið gert ráð fyrir 3.072.258 kr. í atvinnutekjur á árinu. Ekki hafi verið gert ráð fyrir öðrum tekjum, en gert hafi verið ráð fyrir iðgjaldi í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð 122.893 kr. Kærandi hafi ekki gert athugasemdir við þessa tekjuáætlun og hafi fengið greitt í samræmi við hana í ágústmánuði 2019. Kærandi hafi hætt á endurhæfingarlífeyri eftir þann mánuð.

Við bótauppgjör ársins 2019 þann 22. maí 2020 hafi komið í ljós að endanlegar tekjur kæranda á tímabilinu 1. janúar til 31. ágúst 2019 hafi verið 1.704.481 kr. í launatekjur og 20.736 kr. í fjármagnstekjur. Einnig hafi verið tekið tillit til þess að greitt hafi verið 63.121 kr. í iðgjald til lífeyrissjóðs sem hafi komið til frádráttar.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2019 hafi verið sú að kærandi hafi verið ofgreidd í bótaflokkunum framfærsluuppbót, tekjutryggingu og orlofs- og desemberuppbótum. Kærandi hafi fengið 1.966.877 kr. greiddar á tímabilinu en hefði með réttu átt að fá 1.679.720 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 181.081 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Þann 12. júní 2020 hafi Tryggingastofnun borist andmæli þar sem farið hafi verið fram á endurskoðun á niðurstöðu stofnunarinnar sem hafi verið svarað með bréfi, dags. 27. júlí 2020. Þann 6. ágúst 2020 hafi borist erindi þar sem óskað hafi verið eftir niðurfellingu ofgreiðslukröfunnar. Málið hafi verið tekið fyrir á fundi samráðsnefndar Tryggingastofnunar um meðferð ofgreiðslna sem hafi synjað umsókninni með bréfi, dags. 8. september 2020.

Við afgreiðslu á beiðni kæranda um niðurfellingu hafi, ásamt fyrirliggjandi gögnum, meðal annars verið skoðuð ástæða ofgreiðslunnar, upplýsingar frá skattyfirvöldum um tekjur og eignir, að viðbættum þeim upplýsingum sem aflað hafi verið úr tölvukerfi stofnunarinnar um fjárhag og félagslega stöðu.

Í 55. gr. laga um almannatryggingar sé fjallað um innheimtu ofgreiddra bóta. Ákvæðið sé ekki heimildarákvæði um innheimtu heldur sé lögð sú skylda á Tryggingastofnun að innheimta ofgreiddar bætur. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum. Ákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé undanþáguheimild og sem slíkt skuli skýra það þröngt. Í þessu ákvæði felist að við ákvörðun um hvort fella eigi niður kröfu eigi að fara fram mat, annars vegar á fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum umsækjanda, með tilliti til getu hans til að endurgreiða skuldina, og hins vegar á því hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn þegar hann hafi tekið við hinum ofgreiddu bótum. Aðstæður þurfi að vera sérstakar svo að undanþáguheimild 11. gr. reglugerðarinnar eigi við.

Umrædd krafa hafi orðið til við endurreikning ársins [2019]. Krafan sé réttmæt. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs. Eins og meðfylgjandi gögn beri með sér, sé ljóst að ástæða ofgreiðslunnar hafi verið röng tekjuáætlun. Fyrst og fremst sé um að ræða launatekjur sem kærandi hafi fengið á greiðslutímabilinu og hafi ekki gefið upp. Einnig sé um að ræða fjármagnstekjur sem kærandi hafi ekki gefið upp en þær séu óverulegar. Þessar tekjur hafi ekki komið fram á tekjuáætlun kæranda. Lífeyrisþegi beri ábyrgð á því að tekjuáætlun endurspegli árstekjur hans og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. laganna.

Skilyrði reglugerðarinnar um góða trú verði að skoða í ljósi ábyrgðar lífeyrisþega á því að gefa réttar tekjuupplýsingar hverju sinni. Af fyrirliggjandi gögnum verði ekki séð að þetta skilyrði sé uppfyllt í máli kæranda.

Samráðsnefnd hafi metið fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda á grundvelli upplýsinga sem stofnunin hafi aðgang að. Við skoðun þeirra hafi það verið mat nefndarinnar að ekki væri tilefni til að fella niður kröfuna. Hafi þar bæði verið horft til þeirra skattskyldu og óskattskyldu tekna sem kærandi hafi haft á árinu 2019 og eignastöðu kæranda. Það hafi því verið mat Tryggingastofnunar að ekki væri hægt að líta svo á að hún uppfyllti skilyrði undanþáguákvæðis 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Samkvæmt gögnum málsins sé kærandi núna í háskólanámi í B. Tryggingastofnun hafi því talið rétt að koma til móts við kæranda með því að samþykkja dreifingu kröfunnar á 48 mánuði, í stað þeirra 12 sem að jafnaði sé gert ráð fyrir.

Tryggingastofnun hafi farið ítarlega yfir málið og telji ekki ástæðu til þess að breyta fyrri ákvörðun á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Að lokum sé rétt að taka fram að í kæru komi fram að kærandi telji að miðað hafi verið við launatekjur alls ársins í stað þess að miða við tekjur þeirra mánaða sem hún hafi verið á endurhæfingarlífeyri. Þessi fullyrðing kæranda sé ekki rétt. Eingöngu sé miðað við þær launatekjur sem kærandi hafi haft á tímabilinu 1. janúar til 31. ágúst árið 2019 og komi fram í staðgreiðsluskrá. Sú framkvæmd sé í samræmi við a. lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009, en þar komi fram að við endurreikning bóta til þeirra sem hafi fengið greiðslur hluta úr bótagreiðsluári skuli byggja á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um sé að ræða tekjur sem séu staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu beri að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur hafi verið fyrir hendi í. 

Ljóst sé af staðgreiðsluskrá að kærandi hafi haft 1.704.481 kr. í launatekjur á tímabilinu sem um ræðir. Mismunurinn sem sé á þeirri fjárhæð sem kærandi haldi fram að hún hafi haft á tímabilinu og hún hafi haft samkvæmt staðgreiðsluskrá skýrist af því að með þeim gögnum sem hafi borist frá kæranda hafi vantað launaseðil vegna ágústmánaðar 2019, en þann mánuð hafi launatekjur hennar verið 443.580 kr. 

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2019 og ákvörðun stofnunarinnar um synjun á beiðni kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta.

A. Endurreikningur og uppgjör

Kærandi fékk greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun á árinu 2019 frá janúar og út ágústmánuð. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Launatekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og einnig A-lið 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjustatt. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Samkvæmt a. lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009, skal Tryggingastofnun við endurreikning bóta til þeirra, sem fengu greiðslur hluta úr bótagreiðsluári, byggja á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um er að ræða tekjur sem eru staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu ber að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur var fyrir hendi í. 

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins sendi Tryggingastofnun kæranda tekjuáætlun, dags. 16. janúar 2019, vegna ársins 2019 þar sem ekki var gert var ráð fyrir neinum tekjum á því ári. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út í samræmi við þær tekjuforsendur. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá í maí 2019 kom í ljós að kærandi hafði verið með launatekjur á árinu. Var í kjölfarið útbúin ný tekjuáætlun, dags. 14. maí 2019, þar sem gert var ráð fyrir launatekjum að fjárhæð 620.120 kr. og 24.800 kr. í iðgjald í lífeyrissjóð til frádráttar. Kærandi var upplýst um áætlaða kröfu að fjárhæð 16.941 kr. vegna tímabilsins janúar til og með maí 2019. Kærandi gerði ekki athugasemd við þá tekjuáætlun. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá í júlí 2019 kom í ljós að launatekjur kæranda reyndust hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun frá 14. maí 2019. Var í kjölfarið útbúin ný tekjuáætlun, dags. 10. júlí 2019, þar sem gert var ráð fyrir launatekjum að fjárhæð 3.072.258 kr. og 122.893 kr. í iðgjald í lífeyrissjóð til frádráttar. Kærandi var upplýst um áætlaða kröfu að fjárhæð 163.836 kr. vegna tímabilsins janúar til og með júlí 2019. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá tekjuáætlun.

Fyrir liggur að kærandi naut greiðslna endurhæfingarlífeyris frá janúar og út ágúst 2019. Í samræmi við framangreint ákvæði 1. liðar 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009 hafa allar tekjur kæranda í þeim mánuðum áhrif á réttindi kæranda. Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda, vegna tekjuársins 2019, reyndust tekjur kæranda á umræddu tímabili hafa verið 1.704.481 kr. í launatekjur, 20.736 kr. í fjármagnstekjur og 63.121 kr. iðgjald í lífeyrissjóð til frádráttar. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2019 leiddi í ljós ofgreiðslu að fjárhæð 181.081 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er sú að tekjur vegna tímabilsins 1. janúar til 31. ágúst 2019 voru hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlunum. Um var að ræða launatekjur. Launatekjur eru tekjustofn sem hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt.

Kærandi gerir athugasemd við að Tryggingastofnun hafi tekið inn í endurreikninginn launatekjur sem hún hafi aflað eftir að réttindum hennar hafi lokið hjá stofnuninni, nánar tiltekið byggir kærandi á því að stofnunin hafi gert ráð fyrir 1.704.481 kr. í launatekjur á tímabilinu en hafi átt að gera ráð fyrir 1.260.901 kr. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum voru við endurreikning Tryggingastofnunar eingöngu notaðar launatekjur kæranda fyrstu átta mánuði ársins eins og fram kemur í staðgreiðsluskrá Skattsins vegna tekjuársins 2019. Samkvæmt staðgreiðsluskrá voru launatekjur kæranda 443.580 kr. í ágúst. Úrskurðarnefndin telur ljóst að um misskilning sé að ræða hjá kæranda hvað þetta varðar þar sem hún hafði ekki tekið tillit til launagreiðslna ágústmánaðar. Við úrlausn þessa máls horfir úrskurðarnefnd til þess að umræddar tekjur voru greiddar kæranda á framangreindu tímabili ársins 2019 og tilheyra því endurreikningi þess árs. Tryggingastofnun er ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtast á framtali bótaþega.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2019.

B. Krafa um niðurfellingu ofgreiddra bóta

Eins og áður hefur komið fram ber Tryggingastofnun lögum samkvæmt að endurreikna bótafjárhæðir bótagreiðsluárs eftir að álagning skattyfirvalda á opinberum gjöldum hefur farið fram, sbr. fyrrgreinda 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Þá er meginreglan sú að stofnuninni beri að innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laganna. Í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags er hins vegar að finna heimild til undanþágu frá endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ákvæðið hljóðar svo:

„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.“

Framangreind 11. gr. reglugerðarinnar heimilar undanþágu frá endurgreiðslukröfu að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Aðstæður verða að vera sérstakar. Við mat á því hvort aðstæður séu sérstakar skal einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort bótaþegi hafi verið í góðri trú þegar hann tók við hinum ofgreiddu bótum. Tryggingastofnun ríkisins hefur hafnað því að heimild tilvitnaðs reglugerðarákvæðis eigi við í tilviki kæranda.

Úrskurðarnefnd velferðarmála lítur til þess við úrlausn þessa máls að endurhæfingarlífeyrir og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins sæta tekjuskerðingu og eru bótaþegar upplýstir um tekjutenginguna við upphaf lífeyristöku. Þá er bótaþegum gert að upplýsa um tekjur sínar á bótagreiðsluári í tekjuáætlun hvers árs. Eins og áður greinir gerir 39. gr. laga um almannatryggingar ráð fyrir að það komi í hlut þess aðila, sem bætur þiggur frá Tryggingastofnun, að upplýsa réttilega um tekjur sem kunna að falla til á bótagreiðsluári. Þannig hvílir sú ábyrgð á bótaþega að tekjuáætlun sé rétt. Í bréfi Tryggingastofnunar, dags. 16. janúar 2020, vegna afgreiðslu á umsókn kæranda um áframhaldandi greiðslur endurhæfingarlífeyris, kemur fram að kærandi þurfi að láta vita ef breytingar verða á aðstæðum hennar sem kunni að hafa áhrif á bótarétt eða fjárhæð bóta. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefnd velferðarmála að kæranda hefði mátt vera kunnugt um að launatekjur hennar myndu hafa áhrif á bótagreiðslur og því hafi henni borið að upplýsa um þær á því tímabili sem hún naut tekjutengdra greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins. Því er ekki fallist á að kærandi hafi verið í góðri trú í skilningi 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Kemur þá til skoðunar hvort fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda gefi tilefni til niðurfellingar. Í umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu kemur fram að ástæða beiðninnar séu erfiðar félagslegar aðstæður. Vísar þar kærandi til þess að hún sé á leiðinni í nám í B og hafi haft mjög litla vinnu á þessu ári og lágar tekjur. Kærandi sé að fara á námslán og geti ekki borgað kröfuna. Meðaltekjur kæranda á árinu 2019 voru samkvæmt staðgreiðsluskrá 428.253 kr. á mánuði. Að auki fékk kærandi greiddar skattfrjálsar tekjur frá TM tryggingum að fjárhæð 928.822 kr. á því ári. Meðaltekjur kæranda fyrstu átta mánuði ársins 2020 voru 106.468 kr. Þá verður ráðið af gögnum málsins að eignastaða kæranda hafi verið jákvæð á árinu 2019, þar með talið var inneign kæranda í banka í lok ársins 1.016.388 kr. Einnig liggur fyrir að 10. júlí 2019 var kærandi upplýst um áætlaða kröfu að fjárhæð 163.836 kr., eða löngu áður en tekjur hennar lækkuðu, og henni var veittur kostur á að greiða skuldina strax. Úrskurðarnefndin horfir til þess að Tryggingastofnun hefur dreift eftirstöðvum kröfunnar á 48 mánuði í stað þess að kærandi þurfi að endurgreiða ofgreiðslukröfuna á 12 mánuðum eins og meginregla 3. mgr. 55. gr. laga um almannatryggingar kveður á um þannig að mánaðarleg greiðslubyrði af henni nemur 3.773 kr. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til erfiðra félagslegra aðstæðna. Einnig lítur nefndin til þess að samkvæmt meginreglu 55. gr. laga um almannatryggingar skal Tryggingastofnun innheimta ofgreiddar bætur og ber að túlka undantekningu frá þeirri meginreglu þröngt samkvæmt almennum lögskýringarsjónarmiðum. Að framangreindu virtu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að ekki sé tilefni til niðurfellingar endurgreiðslukröfunnar á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 8. september 2020 um að synja umsókn kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2019 og synjun umsóknar um niðurfellingu ofgreiðslukröfu, eru staðfestar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum