Hoppa yfir valmynd
22. september 2021 Utanríkisráðuneytið

Stelpur rokka áfram í Tógó

Ljósmyndir: Alda Lóa Leifsdóttir. - mynd

Undanfarin ár hafa samtökin Stelpur rokka! í samstarfi við Sól í Tógó og Association Mirlinda staðið fyrir rokkbúðum fyrir stúlkur í Tógó með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu. Nýlega fékk verkefnið áframhaldandi styrk og stendur því til að halda rokkbúðir næstu fjögur árin í það minnsta ásamt því að styðja við rekstur tónlistarmiðstöðvar í Tógó.

Rokkbúðirnar voru fyrst haldnar árið 2016 og hafa frá þeim tíma verið árlegur viðburður í tógósku tónlistarlífi. „Rokkbúðirnar njóta mikilla vinsælda og myndast jafnan langur biðlisti í þær,“ segir Áslaug Einarsdóttir framkvæmdastýra hjá samtökunum Stelpur rokka! „Rokkbúðirnar í ár eru nýafstaðnar en 40 stúlkur rokkuðu saman í viku í lok ágúst  í bænum Tsévie, skammt frá höfuðborginni Lomé. Þátttakendur rokkbúðanna lærðu á hljóðfæri, sömdu lög og æfðu hópdansa og afraksturinn var fluttur á opinberum lokatónleikum þar sem 5 nýskipaðar hljómsveitir komu fram ásamt kennurum og starfsfólki rokkbúðanna,“ segir hún.

Að sögn Áslaugar miða rokksumarbúðirnar meðal annars að því að gera ungum tógóskum stúlkum kleift að hafa rými til tónlistarsköpunar og skapa þar jákvætt, styðjandi og hvetjandi andrúmsloft en slíkt rými er oftar en ekki ætlað drengjum. „Stúlkur á aldrinum 9-19 ára koma víða að í Tógó til að sækja rokkbúðirnar og tógóskar tónlistarkonur taka þátt í að kenna eða heimsækja búðirnar. Þar með myndast öflugt tengslanet milli stúlknanna og kvennanna,“ segir Áslaug.

Styrkurinn er hluti af samstarfi utanríkisráðuneytisins við íslensk félagasamtök í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Opið er fyrir umsóknir til mannúðaraðstoðar allt árið svo lengi sem fjárheimildir leyfa. Allar nánari upplýsingar má finna hér.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
4. Menntun fyrir öll
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum