Hoppa yfir valmynd
26. júní 2018 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 39/2018 Úrskurður 26. júní 2018

Mál nr. 39/2018                    Eiginnafn:     Alma (kk.)

 

 

 

 

Hinn 26. júní 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 39/2018 en erindið barst nefndinni 5. júní.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Alma er skráð á mannanafnaskrá sem kvenmannsnafn. Með vísan til 2. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn er því ekki hægt að samþykkja það sem karlmannsnafn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Alma (kk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum