Hoppa yfir valmynd
20. júní 2002 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-maí 2002. Greinargerð: 20. júní 2002

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-maí 2002. (PDF 16K)

Nú liggja fyrir tölur um greiðsluafkomu ríkissjóðs fyrstu fimm mánuði ársins. Uppgjörið hér á eftir sýnir sjóðhreyfingar og er sambærilegt við almenn sjóðstreymisyfirlit. Tölurnar eru því ekki samanburðarhæfar við ríkisreikning eða fjárlög ársins sem eru sett fram á rekstrargrunni.

Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 8,9 milljarða króna samanborið við 5,1 milljarð á sama tíma í fyrra. Hreinn lánsfjárjöfnuður var neikvæður um 8,2 milljarða, samanborið við 7,2 milljarða króna á sama tíma í fyrra.

Heildartekjur ríkissjóðs námu 92 milljörðum króna og hækka um 6 milljarða frá fyrra ári, eða um rúmlega 6S%. Skatttekjur ríkissjóðs hækka minna, eða um 5S%. Til samanburðar má nefna að almennar verðbreytingar námu um 8% á þessu tímabili og því ljóst að áfram gætir nokkurs samdráttar í efnahagslífinu. Hins vegar benda þessar tölur til þess að samdrátturinn sé í rénun. Til marks um þetta má nefna að tekjur af virðisaukaskatti fyrstu fimm mánuði ársins hækka um tæpa 2 milljarða króna frá sama tíma í fyrra, eða sem nemur tæplega 7S%. Það svarar til um S% lækkunar að raungildi samanborið við 7% raungildislækkun á sama tíma í fyrra.

Greidd gjöld nema 100,7 milljörðum króna og hækka um rúma 9S milljarð frá fyrra ári, eða 10,5%. Útgjöld til félagsmála eru 58,7 milljarðar og vega tæp 60% af heildarútgjöldum ríkissjóðs. Þar munar mestu um heilbrigðismál, eða 24,4 milljarða sem hækka um 3,1 milljarð króna frá fyrra ári. Þá hækka greiðslur til almennrar stjórnsýslu um 1,8 milljarða og til fræðslumála um 1,2 milljarða. Almannatryggingar hækka einnig um 1,2 milljarða, eða sem nemur 7%, en það er hlutfalllega lægra en hjá öðrum málaflokkum. Greiðslur til atvinnumála í heild hækka aðeins um 2% þar sem 400 m.kr. lækkun til landbúnaðarmála vegur upp á móti hækkun samgöngumála. Vaxtagreiðslur hækka um tæpar 800 m.kr., eða sem nemur 6,7% milli ára.

Á árinu var tekið erlent langtímalán að fjárhæð 21,6 milljarðar króna. Ætlunin er að auka vægi langtímalána og því er gert ráð fyrir að erlend skammtímalán fari lækkandi á næstu mánuðum. Lántökur innanlands námu 9 milljörðum króna. Á móti lántökum vega afborganir að fjárhæð 18,3 milljarðar og munar mestu um rúmlega 10 milljarða króna gjalddaga erlends langtímaláns. Þá voru 3,8 milljarðar greiddir til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs. Greiðsluafkoma ríkissjóðs var neikvæð um 1,9 milljarða króna, samanborið við 1 milljarð á sama tíma í fyrra.





Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum