Hoppa yfir valmynd
2. september 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 261/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 261/2020

Miðvikudaginn 2. september 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Þórhildur Líndal lögfræðingur.

Með kæru, dags. 28. maí 2020, kærði B lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála greiðsluáætlun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 3. mars 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 22. janúar 2020, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna væntanlegrar barnsfæðingar 26. mars 2020. Umsókn kæranda var samþykkt og henni kynnt greiðsluáætlun með ákvörðun, dags. 3. mars 2020, þar sem fram kom að mánaðarleg greiðsla til hennar yrði 184.119 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 28. maí 2020. Með bréfi, dags. 3. júní 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst með bréfi, dags. 9. júní 2020, og var hún send umboðsmanni kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 19. júní 2020, og á ný með tölvupósti 3. júlí 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi flutt til Íslands frá C 17. september 2019. Þar hafi kærandi verið í framhaldsnámi í D, í fullu starfi frá 1. september 2015. Kærandi hafi fengið þær upplýsingar frá Fæðingarorlofssjóði, áður en hún hafi flutt til Íslands, að ef hún myndi byrja að vinna á Íslandi innan 10 virkra daga frá því að hún hætti í vinnu í C þá ætti hún rétt á launatengdum greiðslum sem miðuðust við launin sem hún hefði fengið í C. Kærandi hafi aftur haft samband við Fæðingarorlofssjóð 3. janúar 2020 og þá fengið breytt svör, þ.e. að óvíst væri hvort hún fengi launatengdar greiðslur miðað við tímabilið í C. Kærandi hafi, eins og áður segi, komið til Íslands 17. september 2019 og hafið störf á E 30. september 2019, sem sé innan 10 virkra daga. Í eftirfarandi samskiptum við Fæðingarorlofssjóð sé kæranda skýrt frá því að hún flytji réttindin á milli landa, þ.e. starfstímann erlendis en launin sem hún vinni sér inn og greiði af skatta og skyldur utan Íslands geti sjóðurinn ekki notað til útreiknings hér á landi. Í framhaldinu hafi kærandi sótt formlega um greiðslur í fæðingarorlofi og fengið greiðsluáætlun 3. mars 2020.

Kærandi byggi kæru sína á því að það sé brot á þeim Evrópureglum sem Ísland hafi skuldbundið sig til að fylgja með aðild sinni að EES-samningnum að líta ekki til tekna hennar í C á viðmiðunartímabilinu. Kærandi telji staðhæfingu Fæðingarorlofssjóðs um að ekki sé heimilt að líta til erlendra tekna ekki geta átt við um tekjur sem aflað sé í öðru EES-landi, sem C sé tvímælalaust. Kærandi telji einnig ákveðna þversögn vera í því að Fæðingarorlofssjóður telji heimilt að samþykkja starfstíma hennar í C til réttindatímans en að sjóðnum sé óheimilt að líta til launanna sem kærandi hafi aflað á sama tíma. Fullyrðing sjóðsins um að „launin þín sem þú vinnur þér inn og greiðir skatta og skyldur af úti getum við ekki notað til útreiknings hér á landi þar sem við höfum bara íslensku staðgreiðsluskrána til að reikna með“ standist ekki þegar af þeirri ástæðu að mikil samvinna sé á milli skattyfirvalda, ekki síst á milli Norðurlandanna og upplýsingar berist á milli landa um tekjur erlendis. Fæðingarorlofssjóður geti því auðveldlega fengið staðfest að greitt hafi verið til opinberra aðila af launum hennar í C með sama hætti og gert sé hér á landi.

Frjálsir fólksflutningar og frjáls för launafólks innan EES-svæðisins sé meðal grundvallarmarkmiða EES-samstarfsins, sbr. 1. og 28. gr. EES-samningsins. Samræming almannatryggingakerfa í aðildarríkjum EES-samningsins sé órjúfanlegur þáttur í meginreglunni um frjálsa fólksflutninga. Sú samræming geri launafólki og öðrum kleift að flytja á milli EES-ríkja án þess að tapa réttindum sínum til almannatrygginga, sem fæðingarorlofsgreiðslur teljist hluti af. Í þessu felist meðal annars að EES-ríki beri að horfa til þess tíma sem starfsmaður hafi unnið í öðru EES-ríki við ákvörðun réttinda til almannatrygginga, sbr. 29. gr. EES-samningsins. Reglan um uppsöfnun tímabila sem birtist í 29. gr. samningsins sé nánar útfærð í 6. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 frá 29. apríl 2004 um samræmingu almannatryggingakerfa, sbr. VI. viðauka við EES-samninginn. Reglugerðin hafi komið í staðinn fyrir reglugerð ráðsins (EB) nr. 1408/71 frá 14. júní 1971, sem hafi einnig verið hluti af EES-samningnum. Efnisreglurnar sem hér beri að líta til séu þær sömu í báðum reglugerðum. Ákvæðum beggja reglugerðanna sé ætlað að auðvelda frjálsa för launamanna, sem sé eitt grundvallarmarkmið EES-samningsins. Takmarkanir á gildissviði reglugerðarinnar þurfi að byggja á skýru orðalagi.

Kærandi telji það ekki standast skoðun að segja eins og Fæðingarorlofssjóður geri að rétturinn sé tryggður með því eingöngu að samþykkja að kærandi eigi rétt á fæðingarorlofi hér á landi á grundvelli starfstíma síns í C en miða svo greiðslur til hennar í fæðingarorlofinu á íslenskum tekjum, sem liggi fyrir að séu engar á viðmiðunartímabilinu eins og Fæðingarorlofssjóður túlki reglurnar. Kærandi telji þessa framkvæmd Fæðingarorlofssjóðs ákveðna afskræmingu á þeim skilyrðislausa rétti borgaranna að tapa engu í réttindum sínum til almannatrygginga vegna vinnu á EES- svæðinu.

Þótt aðildarríki EES-svæðisins ráði því hvernig þau skipuleggi almannatryggingakerfi sín þá telji kærandi að þau verði við það skipulag að horfa til meginreglna EES-samningsins. Kærandi bendi á að ESB-dómstóllinn hafi fjallað um það í málum C-185/04 og C-257/10 hvort heimaríki einstaklinga sem nýtt höfðu rétt sinn til frjálsra fólksflutninga ættu að líta til launa sem hafi verið aflað í starfi í öðrum aðildarríkjum við mat á greiðslum í fæðingarorlofi. Í báðum málunum hafi dómstóllinn komist að þeirri niðurstöðu að stjórnvöldum bæri að líta til launa á starfstímabili í öðrum aðildarríkjum við útreikning á greiðslum sem taki mið af launum einstaklings á tilteknu tímabili. Fyrir liggi að hefði kærandi ákveðið að vera áfram í Cog átt barn sitt þar hefði hún fengið fæðingarorlof miðað við laun þau sem hún hafi aflað sér á viðmiðunartíma. Ákvörðun kæranda um að flytja til Íslands setji hana í lakari stöðu en ella sem sé í beinni andstöðu við skýr markmið EES-samningsins um frjálsa för fólks.

Kærandi bendi einnig á að í 34. gr. laga nr. 95/2000 segi að taka skuli tillit til milliríkjasamninga á sviði almannatrygginga og félagsmála sem Íslands sé aðili að. EES-samningurinn sé sannarlega af þeim toga. Ekki verði betur séð en að orðalag laganna um innlendan vinnumarkað sé takmörkun sem sé í andstöðu við þær meginreglur sem gildi í Evrópuréttinum um frjálsa för, sbr. einnig áður tilvitnaða dóma.

Að öllu þessu virtu sé niðurstaða Fæðingarorlofssjóðs kærð og krefst kærandi þess að við ákvörðun greiðslna hennar í fæðingarorlofi verði einnig horft til tekna hennar í C.

III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs

Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að lög nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof taki til réttinda foreldra á innlendum vinnumarkaði til fæðingar- og foreldraorlofs og þau eigi við um foreldra sem séu starfsmenn eða sjálfstætt starfandi, sbr. 1. mgr. 1. gr. laganna. Í athugasemdum við 1. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 95/2000 komi fram að „(l)agt er til að veita eingöngu foreldrum sem eru þátttakendur á innlendum vinnumarkaði rétt til fæðingar- og foreldraorlofs“. Þá segi einnig að „(þ)etta er ekki breyting frá gildandi fæðingarorlofslögum, nr. 57/1987, með síðari breytingum. Í 2. gr. þeirra laga segi: „Foreldrar, sem gegna launuðum störfum og eiga lögheimili á Íslandi, eiga rétt á fæðingarorlofi í allt að sex mánuði …“ Fallið var frá búsetuskilyrðum og er gert nægilegt að viðkomandi starfi á íslenskum vinnumarkaði. Er þetta einkum gert með tilliti til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið“. Samkvæmt framangreindu verði þannig ráðið að löggjafinn hafi við afmörkun á gildissviði laganna tekið tillit til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið með þeim hætti að fallið hafi verið frá búsetuskilyrðum en í staðinn gert nægilegt að viðkomandi starfi á íslenskum vinnumarkaði, sbr. einnig 34. gr. laga nr. 95/2000, sem mæli fyrir um það að við framkvæmd laganna skuli tekið tillit til milliríkjasamninga á sviði almannatrygginga og félagsmála sem Ísland sé aðili að.

Í 4. gr. laga nr. 95/2000 sé kveðið á um sérstakan sjóð sem stofnaður hafi verið með lögunum og hafi það hlutverk að annast greiðslur til foreldra sem réttinda njóta til greiðslna í fæðingarorlofi samkvæmt 13. gr., sbr. 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna. Fæðingarstyrkir til foreldra samkvæmt VI. kafla greiðast aftur á móti úr ríkissjóði, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 95/2000. Í 3. mgr. 4. gr. laganna sé kveðið á um það að Fæðingarorlofssjóður skuli fjármagnaður með tryggingagjaldi, sbr. lög um tryggingagjald [innsk. lög nr. 113/1990], auk vaxta af innstæðufé sjóðsins. Í lögum um tryggingagjald nr. 113/1990 sé síðan nánar kveðið á um meðal annars gjaldskylda aðila, gjaldstofn, laun og þess háttar., hlunnindi, undanþágur frá gjaldstofni og erlenda launagreiðendur. Við útreikning á meðaltali heildarlauna foreldra á innlendum vinnumarkaði sé nauðsynlegt að líta til framangreindra ákvæða, enda sé Fæðingarorlofssjóður fjármagnaður með tryggingagjaldi og þá sé sérstaklega kveðið á um það í 13. gr. laga nr. 95/2000 hvaða laun skuli koma með við útreikninginn, til hvaða annarra tilvika skuli taka tillit til við hann og hvernig skuli farið með starfsmenn sem uppfylli skilyrði til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, en hafi ekki starfað á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabili. Fyrir liggi að þær tekjur sem kærandi hafi aflað vegna starfa sinna í C séu ekki taldar til launa og annarra þóknana samkvæmt lögum um tryggingagjald nr. 113/1990 og ekki hafi verið greitt tryggingagjald af þeim sem fjármagnar Fæðingarorlofssjóð.

Fæðingarorlofssjóður vísar til þess að í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 sé kveðið á um það að foreldri öðlist rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns eða þann tíma þegar barn komi inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur, sbr. 2. og 5. mgr. 8. gr. Í 12. mgr. 13. gr. laganna komi fram að þegar foreldri hafi starfað á innlendum vinnumarkaði að minnsta kosti síðasta mánuðinn á ávinnslutímabili samkvæmt 1. mgr. skuli Vinnumálastofnun, að því marki sem nauðsynlegt sé, taka tillit til starfstímabila þess sem starfsmanns eða sjálfstætt starfandi einstaklings í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, Norðurlandasamningnum um almannatryggingar, stofnanasamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða samningi milli ríkisstjórnar Íslands annars vegar og ríkisstjórnar Danmerkur og heimastjórnar Færeyja hins vegar á ávinnslutímabilinu, enda hafi störf foreldris veitt foreldrinu rétt samkvæmt lögum þess ríkis um fæðingarorlof. Það sama gildi hafi foreldri starfað skemur en síðasta mánuðinn á innlendum vinnumarkaði. Skilyrði er að foreldri hafi hafið störf á innlendum vinnumarkaði innan tíu virkra daga frá því að það hætti störfum á vinnumarkaði í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, í öðru Norðurlandaríki, í öðru EFTA-ríki eða í Færeyjum. Foreldri skuli láta tilskilin vottorð um áunnin starfstímabil og tryggingatímabil í öðru ríki í samræmi við ákvæði samninganna fylgja með umsókn um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 15. gr. Óumdeilt sé að kærandi uppfylli skilyrði um að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns samkvæmt 1. og 12. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 og eigi þar með tilkall til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem starfsmaður samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laganna.

Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, sé kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanna, sbr. 2. mgr. 7. gr., í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns eða þann mánuð sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, greiðslur samkvæmt a– og b– liðum 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur samkvæmt III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e liði 2. mgr. 13. gr. a. Þá segi enn fremur í 8. og 9. málsl. að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a., án tillits til þess hvort laun samkvæmt 2. málsl. eða reiknað endurgjald samkvæmt 5. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Í athugasemdum við 8. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 74/2008 komi fram að „(á)fram er gert ráð fyrir að hafi foreldri ekki verið á vinnumarkaði á öllu viðmiðunartímabilinu skal miða við meðalheildarlaun þess fyrir það tímabil sem foreldri hefur verið á innlendum vinnumarkaði“. Síðar í athugasemdunum segi jafnframt að „(þ)á er áfram tekið fram að ekki skuli taka tillit til tekna sem foreldri hefur unnið til utan innlends vinnumarkaðar“. Þannig mæli 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 afdráttarlaust fyrir um það hvaða laun og önnur tilvik skuli telja með við útreikning á meðaltali heildarlauna og að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði.

Á öðrum stað í athugasemdum við 8. gr. framangreinds frumvarps sé að finna ítarlega umfjöllun um 12. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000. Þar segi meðal annars: „Þá er mikilvægt að tekið sé fram að túlka beri lögin í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig gerðir sem felldar hafa verið undir VI. viðauka samningsins. Þar á meðal er reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1408/71 [innsk. nú nr. 883/2004], um beitingu almannatryggingareglna gangvart launþegum og fjölskyldum þeirra sem flytjast milli aðildarríkja, en samkvæmt reglugerðinni ber meðal annars að taka tillit til starfstíma foreldra á vinnumörkuðum í öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins við mat á því hvort foreldri teljist eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði skv. 1. mgr. 13. gr. laganna í fæðingarorlofi“. Í framhaldinu sé túlkun og framkvæmd á 12. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 skýrð nánar, en síðan segi í lok athugasemdanna: „Leiði samlagning starfstímabila til þess að foreldri eigi rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði skal þó einungis taka mið af meðaltali heildarlauna foreldris á viðmiðunartímabili sem foreldri hefur verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. 2. og 5. mgr. 13. gr. laganna eins og þeim er breytt með frumvarpi þessu. Ekki er um breytingu á framkvæmd laganna að ræða að þessu leyti“.

Við setningu 12. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 með lögum nr. 74/2008 hafi löggjafinn þannig séð sérstaka ástæðu til að taka fram í athugasemdum með ákvæðinu að túlka beri lögin í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og gerðir sem felldar hafi verið undir VI. viðauka samningsins, auk þess að taka fram að leiði samlagning starfstímabila til þess að foreldri eigi rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði skuli þó einungis taka mið af meðaltali heildarlauna foreldris á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði.

Í 3. mgr. 15. gr. laga nr. 95/2000 sé kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun afli um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segi jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila samkvæmt 2., 5. og 6. mgr. 13. gr. laganna.

Fæðingardagur barns kæranda hafi verið þann X 2020 og því skuli, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar þá mánuði sem kærandi hafi verið á innlendum vinnumarkaði tímabilið X 2018 til X 2019. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram komi í staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og telji Fæðingarorlofssjóður að þar með liggi fyrir staðfesting á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda. Á tímabilinu hafi engar tekjur verið skráðar á kæranda eða tryggingagjald greitt.

Ágreiningslaust sé að á framangreindu tímabili hafi kærandi starfað sem F í C. Tekjur þær sem kærandi hafi aflaði á þeim tíma teljist hvorki til þeirra launa og annarra þóknana samkvæmt lögum um tryggingagjald nr. 113/1990 sem skylt sé að taka mið af við útreikning á meðaltali heildarlauna samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 né teljast þær til þeirra annarra tilvika sem sérstaklega séu tilgreindar í málsliðnum og skylt sé að taka mið af við útreikning á meðaltali heildarlauna. Þá mæli 8. málsl. 2. mgr. 13. gr. laganna beinlínis fyrir um það að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði […]. Þá sé enga heimild að finna í lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 eða í reglugerð nr. 1218/2008 fyrir Fæðingarorlofssjóð til að taka tillit til þeirra tekna sem kærandi hafi aflað á tímabilinu við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar.

Við aðstæður eins og þær sem séu uppi í máli kæranda mæli 4. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, skýrt fyrir um það að þegar starfsmaður uppfyllir skilyrði 1. mgr. en hefur ekki starfað á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabili samkvæmt 2. mgr. skuli hann öðlast rétt til lágmarksgreiðslna samkvæmt 7. mgr. í samræmi við starfshlutfall hans. Í athugasemdum við 4. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 90/2004 komi fram að „(h)afi foreldri ekki starfað á innlendum vinnumarkaði á öllu viðmiðunartímabilinu er gert ráð fyrir að sami háttur verði hafður á við útreikninga á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og verið hefur. Hafi foreldri verið á innlendum vinnumarkaði skemur en 24 mánuði á umræddu tímabili skal miða við meðaltal heildarlauna þess yfir það tímabil sem foreldri hefur unnið á innlendum vinnumarkaði. Skal þá alltaf miða við almanaksmánuði. Er jafnframt lagt til að kveðið verði skýrt á um að ekki skuli taka tillit til tekna sem foreldri hefur unnið til utan innlends vinnumarkaðar. Ekki er um að ræða efnisbreytingu heldur einungis verið að treysta framkvæmd laganna. Enn fremur er lagt til að áfram verði miðað við að lágmarki fjóra almanaksmánuði við útreikning á meðaltali heildarlauna foreldris. Þá er ætíð gert að skilyrði að foreldri uppfylli skilyrði 1. mgr. um sex mánaða samfellt tímabil á innlendum vinnumarkaði við upphafsdag fæðingarorlofs til að öðlast rétt til greiðslna úr sjóðnum. Hafi foreldri hins vegar ekki starfað á viðmiðunartímabilinu en uppfyllir skilyrði 1. mgr. er gert ráð fyrir að hlutaðeigandi eigi rétt á lágmarksgreiðslum samkvæmt ákvæðinu í samræmi við starfshlutfall sitt“.

Í 7. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, sbr. reglugerð nr. 1218/2008 og í breytingareglugerð nr. 1238/2019, segi loks að greiðsla í fæðingarorlofi til foreldris í 25–49% starfi í hverjum mánuði skuli þó aldrei vera lægri en sem nemur 132.850 kr. á mánuði og greiðsla til foreldris í 50–100% starfi í hverjum mánuði skuli aldrei vera lægri en sem nemur 184.119 kr. á mánuði. Kærandi hafi verið afgreidd með 184.119 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof, sbr. greiðsluáætlun til hennar, dags. 3. mars 2020.

Í greinargóðri kæru kæranda séu raktar skuldbindingar íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um hið Evrópska efnahagssvæði, sbr. lög nr. 2/1993, sem og vísað til tiltekinna reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins og dómsúrlausna Evrópudómstólanna.

Eins og rakið hafi verið í greinargerðinni telji Fæðingarorlofssjóður að ekki sé hægt að leggja annað til grundvallar við úrlausn málsins en það að löggjafinn hafi tekið tillit til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og gerða sem felldar hafi verið undir VI. viðauka samningsins við lögfestingu þeirra ákvæða í lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 sem fjallað hafi verið um og reyni hér á. Þá hafi löggjafinn jafnframt mælt fyrir um það með skýrum hætti að við framkvæmd laganna skuli tekið tillit til milliríkjasamninga á sviði almannatrygginga og félagsmála, sem Ísland sé aðili að, sem Fæðingarorlofssjóður telji að gætt hafi verið að við úrlausn þessa máls.

Þá komi fram í tölvupósti kæranda 3. janúar 2020 og í kæru að hún hafi í fyrstu fengið þær upplýsingar í samskiptum við Fæðingarorlofssjóð að við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar yrði tekið mið af þeim tekjum sem hún aflaði í C en síðan hafi hún fengið þær upplýsingar að svo yrði ekki. Af gögnum málsins og samskiptasögu við kæranda verði hins vegar ekki annað séð en að fyrsti tölvupóstur frá kæranda hafi borist 3. janúar 2020 og í honum virðist kæranda vera það ljóst að tekjur hennar í C verði ekki notaðar við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar en unnt sé að leggja saman starfstímabil í C og á Íslandi við ávinnslu réttinda. Tölvupósti kæranda hafi verið svarað samdægurs þar sem skilningur hennar hafi verið staðfestur. Þannig liggi ekkert fyrir um það í gögnum málsins að kæranda hafi verið veittar rangar eða ófullnægjandi upplýsingar.

Með vísan til framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að greiðsluáætlun til kæranda, dags. 3. mars 2020, beri með sér réttan útreikning á greiðslum til hennar.

IV. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi, dags. 3. mars 2020, um að mánaðarleg greiðsla til kæranda yrði 184.119 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof. Óumdeilt er í málinu að kærandi hefur áunnið sér rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði á grundvelli 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof. Ágreiningur málsins lýtur á hinn bóginn að því hvort líta eigi til tekna sem kærandi aflaði við störf í C við útreikning á greiðslum til hennar úr sjóðinum.

Í 1. gr. laga nr. 95/2000 er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin taki til réttinda foreldra á innlendum vinnumarkaði til fæðingar- og foreldraorlofs. Í athugasemdum við 1. gr. frumvarps til laganna kemur fram að lagt sé til að veita eingöngu foreldrum sem séu þátttakendur á innlendum vinnumarkaði rétt til fæðingar- og foreldraorlofs. Þetta sé ekki breyting frá lögum nr. 57/1987, með síðari breytingum, en í 2. gr. þeirra laga sagði „Foreldrar, sem gegna launuðum störfum og eiga lögheimili á Íslandi, eiga rétt á fæðingarorlofi í allt að sex mánuði …“. Þá kemur fram að fallið hafi verið frá búsetuskilyrðum og gert nægilegt að viðkomandi starfi á íslenskum vinnumarkaði. Það hafi einkum verið gert með tilliti til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 öðlast foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns. Óumdeilt er að kærandi uppfyllir það skilyrði laganna, líkt og að framan greinir, sbr. einnig 12. mgr. 13. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. a. laganna, sbr. 2. mgr. 7. gr., felur þátttaka á innlendum vinnumarkaði meðal annars í sér að starfa sem starfsmaður, þ.e. að vinna launuð störf í annarra þjónustu í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði. Þá telst enn fremur til þátttöku á innlendum vinnumarkaði meðal annars orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti.

Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 segir að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til foreldris í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna. Miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns eða þann dag sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Auk þess segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a., án tillits til þess hvort laun samkvæmt 2. málsl. eða reiknað endurgjald samkvæmt 5. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Barn kæranda fæddist þann X 2020. Samkvæmt framangreindum lagaákvæðum skal því mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar þá mánuði sem kærandi var á innlendum vinnumarkaði tímabilið X 2018 til X 2019. Óumdeilt er að á því tímabili starfaði kærandi í C.  

Í 4. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 segir að þegar starfsmaður uppfylli skilyrði 1. mgr. um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, en hafi ekki starfað á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabili samkvæmt 2. mgr. skuli hann öðlast rétt til lágmarksgreiðslna samkvæmt 7. mgr. 13. gr. laganna í samræmi við starfshlutfall hans. Greiðsla til foreldris í 50–100% starfi í hverjum mánuði skal aldrei vera lægri en sem nemur 184.119 kr. á mánuði, sbr. 7. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 og 1. gr. reglugerðar nr. 1238/2019, um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

Þar sem kærandi var ekki á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabilinu verður að líta til framangreindrar 4. mgr., sbr. 7. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, og fallast á að kærandi hafi eingöngu öðlast rétt til lágmarksgreiðslna sem nemur 184.119 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof, líkt og gert er í hinni kærðu ákvörðun. Hvorki í lögum nr. 95/2000 né reglugerð nr. 1218/2008 er að finna heimild til að taka mið af tekjum kæranda á erlendum vinnumarkaði eins og kærandi óskar eftir. Þá benda lögskýringargögn við 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, sbr. lög nr. 74/2008, svo sem rakið er að framan af hálfu Fæðingarorlofssjóðs, eindregið til að eingöngu skuli miða við tekjur sem aflað er á innlendum vinnumarkaði á áðurnefndu viðmiðunartímabili, sbr. einnig skýrt orðalag 8. málsliðar 2. mgr. 13. gr. laganna. Að mati úrskurðarnefndar er því ljóst að útreikningur Fæðingarorlofssjóðs í greiðsluáætlun, dags. 3. mars 2020, er í samræmi við ákvæði laga nr. 95/2000. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 3. mars 2020, um mánaðarlegar greiðslur til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum