Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

150 milljónum króna úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Velferðarráðuneytið
Velferðarráðuneytið

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2012 í samræmi við tillögur stjórnar sjóðsins. Úthlutað var fé til framkvæmda á níu dvalar- og hjúkrunarheimilum sem stuðla að bættum aðbúnaði aldraðra, samtals um 150 milljónum króna.  

Hæsta úthlutunin, 120 milljónir króna, rennur til verulegra breytinga og endurbóta á dvalar- og hjúkrunarheimilinu aldraðra í Borgarbyggð. Unnið verður að þeim framkvæmdum samhliða opnun nýrrar hjúkrunarálmu sem þar er í byggingu. Næsthæsta úthlutunin, 20 milljónir króna, rennur til breytinga og endurbóta á Hrafnistu í Reykjavík.

Verkefni á öðrum heimilum sem fá framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra eru smærri í sniðum en varða einnig ýmis konar endurbætur og breytingar á húsnæði.

Auglýst var eftir umsóknum um framlög úr sjóðnum í byrjun janúar á þessu ári og rann umsóknarfrestur út 1. febrúar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum