Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Karl Frímannsson er nýr skólameistari Menntaskólans á Akureyri

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Karl Frímannsson í embætti skólameistara Menntaskólans á Akureyri til fimm ára frá 1. ágúst.

Karl Frímannsson hefur starfað sem sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar undanfarin fjögur og hálft ár. Áður var hann meðal annars sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar og skólastjóri Hrafnagilsskóla í 13 ár. Þá starfaði hann í mennta- og menningarmálaráðuneytinu um skeið, bæði sem verkefnastjóri og aðstoðarmaður ráðherra. Karl hefur starfsheitið kennari og viðbótarmenntun í stjórnun.

Til að styðja við undirbúning ákvörðunarinnar skipaði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, sérstaka hæfninefnd utanaðkomandi sérfræðinga til að leggja mat á umsóknargögn. Nefndina skipuðu þau Jóhann Þorvarðarson, lögfræðingur sem jafnframt var formaður, Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor hjá menntavísindasviði Háskóla Íslands og Auður Bjarnadóttir, ráðgjafi hjá Vinnvinn. Að mati hæfninefndar komu þrír af sjö umsækjendum helst til álita til að gegna embættinu. Meðal þeirra var Karl Frímannsson sem mennta- og barnamálaráðherra mat hæfastan umsækjenda til að gegna embættinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum