Hoppa yfir valmynd
8. október 2013 Innviðaráðuneytið

Áætluð úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2013

Innanríkisráðherra  hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 20. september sl. um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2013 á grundvelli 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Að teknu tilliti til ráðstöfunarfjármagns sjóðsins nemur áætluð heildarfjárhæð framlaganna 1.244 milljónum króna og tekur jöfnunin mið af 94,5% af meðaltekjum á íbúa í viðkomandi viðmiðunarflokki framlaganna.

Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Einungis kemur til greiðslu framlags hafi sveitarfélag fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars.

Á morgun koma ¾ hlutar af áætluðum framlögum til greiðslu eða samtals 933,1 milljón króna. Uppgjör framlaganna  fer fram í desember á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum