Hoppa yfir valmynd
14. mars 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Morgunverðarfundur - Saman gegn sóun

Umhverfis- og auðlindaráðherra býður til morgunarverðarfundar fimmtudaginn 17. mars undir yfirskriftinni Saman gegn sóun.

Á fundinum verður stefna ráðherra um úrgangsforvarnir, Saman gegn sóun, kynnt ásamt námsefni um úrgangforvarnir.

Matarsóun verður í forgangi fyrstu tvö ár stefnunnar og verða ýmsar aðgerðir á því sviði kynntar á fundinum, m.a. ný vefgátt um matarsóun og nýtt kerfi strikamerkja sem stuðlað getur að minni sóun.

Fundurinn verður haldinn á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, frá kl. 8.30-10:00 og verður boðið upp á morgunverð.

Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda tölvupóst til [email protected]

Dagskrá fundarins (pdf)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum