Hoppa yfir valmynd
24. júlí 2019 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Stuðningur við regnhlífarsamtök stúdenta

Sonja Björg Jóhannsdóttir, forseti framkvæmdastjórnar LÍS og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra við undirritun samningsins - mynd

Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) eru samtök háskólanema á Íslandi og íslenskra háskólanema á erlendri grundu. Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrkir starfsemi félagsins og á dögunum undirrituðu Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Sonja Björg Jóhannsdóttir, forseti framkvæmdastjórnar LÍS, samning þess efnis. Með samningnum vill mennta- og menningarmálaráðuneyti stuðla að öflugum samstarfsvettvangi háskólastúdenta og að LÍS sé öflugur tengiliður stjórnvalda við íslenska háskólastúdenta í umræðu um skipulag og stefnumótun háskólastigsins.

LÍS eru regnhlífarsamtök og standa að þeim átta aðildarfélög sem eru í forsvari fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands og fyrir íslenska stúdenta sem stunda nám erlendis. Hlutverk samtakanna er að standa vörð um hagsmuni stúdenta og skapa samstarfsvettvang fyrir íslensk stúdentafélög.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum