Hoppa yfir valmynd
26. júní 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Selfoss: Næsti viðkomustaður í hringferð ráðherra vegna landsáætlunar

Verið öll vellkomin á opinn fund á Hótel Selfossi í dag.  - mynd

Selfoss er næsti viðkomustaðir í hringferð Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, vegna landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks. Opinn samráðsfundur fer fram á Hótel Selfossi í dag, mánudaginn 26. júní kl. 17:00

Á morgun, þriðjudaginn 27. júní, fer síðan fram fundur í Reykjavík og verður hann haldinn á Grand hótel kl. 17:00 í salnum Háteigi.

Guðmundur Ingi býður þessar vikurnar til samráðsfunda um landið vegna landsáætlunar og í síðustu viku fóru fram fundir á Ísafirði og Egilsstöðum. Málefni fatlaðs fólks koma okkur öllum við og fólk er hvatt til að mæta og taka þátt. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólks á Íslandi.

  • Skrá þátttöku
    Ef þörf er á táknmálstúlkun, rittúlkun eða annarri sérstakri aðstoð er mikilvægt að það komi fram við skráningu

Viðkomustaðir í hringferðinni:

22. maí – Reykjanesbær kl. 17 (Bíósalur í Duus-safnahúsum)

24. maí – Borgarnes kl. 17 (B-59)

19. júní – Akureyri kl. 17 (Hof – Hamrar)

21. júní – Ísafjörður kl. 12 (Edinborgarhúsið)

22. júní – Egilsstaðir kl. 17 (Berjaya Hérað Hotel)

26. júní – Selfoss kl. 17 (Hótel Selfoss)

27. júní – Reykjavík kl. 17 (Grand hótel – Háteigur)

15. ágúst – Höfn kl. 12 (Nýheimar þekkingarsetur)

18. ágúst – Sauðárkrókur kl. 17 (Grána Bistro)

29. ágúst – Rafrænn fundur fyrir allt landið kl. 17

Dagskrá:

Á fundunum er fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma.

Fundirnir fara þannig fram að ráðherra flytur opnunarávarp og kynnt eru nokkur þeirra verkefna sem tilheyra landsáætluninni. Fulltrúar heildarsamtaka fatlaðs fólks fjalla um sínar áherslur og framtíðarsýn og starf notendaráða er kynnt. Að lokum býður ráðherra til samtals við viðstadda um það sem þeim er efst í huga.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum