Hoppa yfir valmynd
4. maí 2021 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

Með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 1324/2020 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl., er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. júlí - 31. desember 2021.

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnr.:

stk.

%

kr./stk.

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:

0602.9081-.9083 og 0602.9088

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar

01.07.-31.12.21

1.650

30

0

Aðrar:

0602.9093

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.07.-31.12.21

2.160

30

0

Lifandi:

0603.1400

Tryggðablóm (Chrysanthemums)

01.07.-31.12.21

6.500

30

0

0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999

Afskorin blóm og blómknappar sem notað er í vendi eða til skrauts, lifandi, þurrkað, litað, bleikt, gegndreypt eða unnið á annan hátt, þ.m.t. geislafíflar, sólliljur, fétoppar, silkivendir, ilmskúfar, ljónsmunnar, gullhrís, silfurstjörnur, brúðarslör, flamingoblóm og túlípanar.

01.07.-31.12.21

118.750

30

0

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 11. maí 2021.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,

4. maí 2021.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum