Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 22/2020 Úrskurður 21. apríl 2020

Mál nr. 22/2020                     Eiginnafn:      Dylan (kk.)

 

 

Hinn 21. apríl 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 22/2020 en erindið barst nefndinni 16. mars.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga mennta- og menningarmálaráðuneytis, nr. 695/2016 og 800/2018, um íslenska stafsetningu.

Eiginnafnið Dylan (kk.) fullnægir skilyrði (1) hér að ofan, Dylans.  Það uppfyllir einnig skilyrði (2) þar sem það brýtur ekki í bág við íslenskt málkerfi. Í íslensku hafa ýmis karlkyns eiginnöfn endinguna -an, sbr. NatanHálfdanKalman og Tristan. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði (3) sé miðað við að nafnið sé borið fram að enskum hætti /dɪlən/ en þá væri „eðlileg íslensk stafsetning“ Dillan.  Mannanafnanefnd telur hins vegar að ekki sé hægt að gefa sér þær forsendur að framburður nafnsins verði þannig.

Ritháttur nafnsins Dylan (kk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem rittáknið y er ekki ritað í íslenskum orðum nema það styðjist við uppruna. Upphaflega táknaði y í íslensku hljóð sem var svipað y í dönsku og varð til við viss skilyrði. Það á ekki við um það nafn sem hér er sótt um. Í uppruna þess orðs er ekkert sem styður ritháttinn Dylan. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá bera átta karlar, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, nafnið Dylan, sá elsti er fæddur 2000. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Þess vegna getur nafnið ekki talist hafa áunnið sér hefð í íslensku máli.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dylan (kk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum