Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 138/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 8. apríl 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 138/2020

í stjórnsýslumálum nr. KNU20030006 og KNU20030007

 

Beiðni […], […] og barna þeirra um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Þann 16. janúar 2020 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2019, um að taka umsóknir einstaklinga er kveðast heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir K) og […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir M) og barna þeirra, […], um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt kærendum þann 20. janúar 2020. Kærendur óskuðu eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 27. janúar 2020 og var þeirri beiðni kærenda synjað af kærunefnd með úrskurði nefndarinnar nr. 65/2020, þann 6. febrúar 2020. Þá óskuðu kærendur, þann 24. febrúar 2020, eftir endurupptöku á úrskurði kærunefndar nr. 65/2020 en þeirri beiðni var synjað af kærunefnd með úrskurði nr. 88/2020, þann 9. mars 2020. Þann 6. mars 2020 barst kærunefnd á ný beiðni kærenda um endurupptöku ásamt fylgigögnum.

Krafa kærenda um endurupptöku máls þeirra byggir á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kærenda

Kærendur byggja beiðni sína um endurupptöku á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga þar sem þau telji að aðstæður hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í beiðni kærenda er byggt á því að í Grikklandi ríki nú neyðarástand í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd og grísk yfirvöld hafi m.a. beitt táragasi gegn þeim sem freistist til að koma frá Tyrklandi til Grikklands. Kærendur telji að þessi þróun mála muni hafa neikvæð áhrif á stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd og þeirra sem njóti alþjóðlegrar verndar þar í landi. Kærendur vísa til þess að formaður landsdeildar Grikklands hafi sent formönnum landsdeildar allra aðildarríkja Evrópuráðsins bréf, þar sem alvarlegri stöðu í Grikklandi sé lýst. Þar komi fram að hæliskerfið í Grikklandi sé undir miklu álagi og að núverandi ástand stefni þjóðaröryggi Grikkja í hættu vegna samspils flæðis flóttafólks auk útbreiðslu Covid-19 veirunnar sem hafi nú greinst í Grikklandi. Kærendur vísa til þess að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu nú þegar óboðlegar og því sé ljóst að þær muni versna enn frekar á næstu misserum. Kærendur vísa til þess að niðurstaða kærunefndar útlendingamála hafi ekki tekið mið af þessum nýju aðstæðum. Kærendur vísa til þess að með úrskurði kærunefndar útlendingamála hafi nefndin talið að aðstæður flóttafólks í Grikklandi væru ekki svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Þá hafi nefndin talið að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi ekki verið þess eðlis að þær, einar og sér, teldust til sérstakra ástæðna. Kærendur vísa til þess að kærunefnd útlendingamála hafi lagt mat á þáverandi aðstæður í Grikklandi með úrskurði sínum og telji að það mat eigi ekki við um aðstæður í Grikklandi eins og þær blasi við í dag. Því eigi kærendur rétt á því að mál þeirra sé endurupptekið á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hefur verulega frá því ákvörðun var tekin.

Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í málum kærenda þann 16. janúar 2020 með úrskurði nr. 4/2020. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd á Íslandi og frávísun frá landinu bryti ekki gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. mgr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var ekki talið að kærendur hefðu slík tengsl við landið eða að aðstæður þeirra væru að öðru leyti svo sérstakar að taka ætti umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur reisa beiðni sína um endurupptöku á því að aðstæður í Grikklandi hafi breyst verulega frá því að úrskurður kærunefndar nr. 4/2020 var kveðinn upp, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga, eins og áður hefur verið rakið og fyrri niðurstaða kærunefndar hafi ekki tekið mið af þessum nýju upplýsingum.

Það er mat kærunefndar að aðstæður Í Grikklandi hafi breyst frá því að úrskurður í málum kærenda var kveðinn upp. Þegar litið er til þess, forsendna úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 4/2020 og málanna í heild að fallast beri á að tilefni sé til þess að endurupptaka fyrri úrskurð nefndarinnar.Kærunefnd fellst því á beiðni kærenda um endurupptöku mála þeirra og barna þeirra.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi

Réttarstaða barna kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna, þ. á m. viðtöl við kærendur hjá Útlendingastofnun, og er það mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A, B, C og D sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A, B, C og D verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A, B, C og D eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna hlutu kærendur og börn þeirra A, B og C réttarstöðu flóttamanns í Grikklandi þann 20. júní 2018 og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi til 20. maí 2021. Þá hefur D gilt dvalarleyfi í Grikklandi til sama dags á grundvelli alþjóðlegrar verndar foreldra sinna. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærendur og börn þeirra njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Kærendur eru hjón á […] með fjögur börn, […]. Samkvæmt gögnum málanna eru M og K almennt við góða líkamlega heilsu. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst M m.a. vera þreyttur og líða illa vegna flóttans […]. Þá hafi hann greint frá því að hann hafi glímt við verk í fæti og höfuðverki. Þá hafi K greint frá því í viðtölum að andleg líðan hennar sé slæm vegna flutninga og hún hafi glímt við […] um tíma en fengið lyf vegna þess og sé einkennalaus.

Í viðtölum við kærendur hjá Útlendingastofnun hafi einnig komið fram að börnin séu almennt heilbrigð en séu með astma og þurfi að taka innúðalyf. Samkvæmt frásögn M og K, hafi B verið […] í heimaríki og glími í kjölfarið við […] en hafi fengið lyf í Grikklandi og sé einkennalaus. […].

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2019 – Greece (Freedom House, 2019);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR ‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World ‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  • Yfirlýsing Flóttamannastofnunar, dags. 2. mars 2020 (https://www.unhcr.org/news/press/2020/3/5e5d08ad4/unhcr-statement-situation-turkey-eu-border.html?query=greece);
  • Yfirlýsing barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, dags. 3. mars 2020 (https://www.unicef.org/press-releases/protecting-children-must-be-top-priority-latest-refugee-surge-response);
  • Yfirlýsing samtakanna European Council on Refugees and Exiles, dags. 3. mars 2020 (https://www.ecre.org/ecre-statement-on-the-situation-at-the-greek-turkish-border/?fbclid=IwAR2SHfXn8pq4bLlsY23LxWEPVhxrZHtIkz2LwmiZICP_n0ZpT9IzO0r6_Zg), og
  • Bréf 85 samtaka til grískra yfirvalda og Evrópuþingsins, leiðtogaráðs og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, dags. 6. mars 2020 (https://www.ecre.org/joint-statement-protect-our-laws-and-humanity/).

Af framangreindum gögnum verður ráðið grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Þá má ráða af upplýsingum um aðstæður í Grikklandi, í ljósi Covid-19 faraldursins sem nú geisar, að heilbrigðiskerfi Grikklands sé illa í stakk búið til þess að takast á við þá stöðu sem komin er upp og að sérstök hætta sé á að flóttamenn í landinu séu í lakari stöðu í Grikklandi, m.t.t. framangreindra aðgangshindrana að heilbrigðisþjónustu.

Aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði eru í Grikklandi eru t.d. bætur fyrir fjölskyldur (e. Family allowance) en skilyrði fyrir slíkum bótum er að sýnt sé fram á tíu ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veita grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk (g. Κοινωνικό Επίδομα Αλληλεγγύης, KEA). Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfa m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Samkvæmt framangreindri skýrslu Asylum Information Database er erfitt að uppfylla skilyrði styrksins. Þá eru engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði í reynd. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í gögnum um aðstæður á Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer (g. Αριθμός Φορολογικού Μητρώου, AFM), hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferð, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, skuli fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir skv. lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar vegna skattnúmers sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku tungumáli. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanns stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu lengdist töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó þurfi enn frekari aðgerðir. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu Asylum Information Database, kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það þá kemur fram að einungis rúmlega helmingur barna á flótta sækir skóla í Grikklandi. Er ástæðan fyrir þessu m.a. rakin til tungumálahindrana og þess að námið hentar ekki endilega börnum sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Undanfarnar vikur hafa borist fregnir af átökum og spennu við landamæri Grikklands og Tyrklands, sem sé m.a. afleiðing hernaðaraðgerða í Sýrlandi. Tyrkir hafi slakað á gæslu við landamærin og þúsundir flóttamanna freisti þess nú að komast yfir landamærin til Grikklands þar sem grísk stjórnvöld hafi mætt þeim af hörku og með breytingu á framkvæmd sinni við skráningu og vinnslu umsókna um alþjóðlega vernd, þ. á m. hætt að skrá nýjar umsóknir. Af gögnum megi ráða að ástandið sé afar viðkvæmt og að ólga sé fyrir hendi í grísku samfélagi. Fordómar, andúð og ofbeldi gagnvart þessum hópi hafi aukist og komið hafi upp tilvik þar sem gerðar hafa verið árásir á mannréttindasamtök og stofnanir sem vinni að hagsmunum flóttafólks í Grikklandi. Ýmis alþjóðasamtök og frjáls félagasamtök hafa lýst yfir áhyggjum af ástandinu, sbr. m.a. framangreindar yfirlýsingar, þ.m.t. yfirlýsing Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, dags. 2. mars 2020, og barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, dags. 3. mars 2020. Í yfirlýsingu 85 samtaka, þ. á m. European Council on Refugees and Exiles (ECRE), til grískra yfirvalda, Evrópuþingsins, leiðtogaráðsins og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, dags. 6. mars 2020, er m.a. kallað eftir því að komið verði strax aftur á ferlum varðandi flutning (e. relocation) á flóttamönnum og umsækjendum um alþjóðlega vernd frá Grikklandi til annarra aðildarríkja Evrópusambandsins, á sanngjarnan og skynsaman hátt, með fylgdarlaus börn í forgangi. Þá er í framangreindri yfirlýsingu frá barnahjálp Sameinuðu þjóðanna kallað eftir því að þjóðir standi við alþjóðlegar skuldbindingar sínar og verji börn, sama hvaðan þau koma. Þeim verði tryggt öruggt aðgengi að alþjóðlegri vernd í stað þess að grípa til aðgerða og yfirlýsinga sem ali á fordómum og útlendingaandúð. Þá er í yfirlýsingu ECRE lögð áhersla á að Evrópuríki deili ábyrgð vegna flóttamanna sem koma að ytri landamærum. Herská orðræða ráðamanna auki líkur á ofbeldi gagnvart fólki sem sé í leit að vernd og samtökum sem styðji þann hóp. ECRE lýsir yfir áhyggjum af versnandi umhverfi er þetta varðar, bæði í Grikklandi og Tyrklandi.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er fjallað um mat á því hvort taka eigi umsókn til efnislegrar meðferðar hér á landi vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, og eru ákveðin viðmið þar nefnd í dæmaskyni. Er þar m.a. átt við þau tilvik þegar umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þá er jafnframt vísað til þess að ákvæðið geti átt við þegar umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá koma fram í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra eða annars fjölskyldumeðlims sem hefur það á framfæri sínu skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman. Við það mat beri meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kærenda og barna þeirra. Þau eru með réttarstöðu flóttamanna í Grikklandi og hafa m.a. greint frá bágum aðstæðum þeirra þar í landi. Þau hafi t.a.m. haft takmarkaðan aðgang að heilbrigðisþjónustu, félagslegri þjónustu og ekki fengið atvinnu. Líkt og áður hefur verið rakið hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar. Aftur á móti liggur fyrir að ýmsar hindranir eru á því að þeir geti sótt þessi réttindi. Til að mynda sé ljóst að börn eigi lagalegan rétt á menntun í Grikklandi en framangreind gögn benda til þess að yfirstíga þurfi ákveðnar stjórnsýsluhindranir til að skrá börn í skóla og að réttur til menntunar sé ekki í öllum tilvikum virkur. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Grikklandi m.t.t. félagslegra bóta telur kærunefnd ljóst að þau skilyrði sem sett eru fyrir félagslegum bótum í Grikklandi geta valdið því að fjölskyldur með alþjóðlega vernd þar í landi geti átt erfitt með að yfirstíga þær hindranir sem finna má í grísku stjórnkerfi er það varðar, og þar með framfleyta sér. Sem dæmi er ólíklegt að þau uppfylli sum skilyrði, t.d. um tíu ára óslitna búsetu fyrir fjölskyldubótum, þá er líklegt að þau mæti hindrunum við að uppfylla önnur skilyrði t.d. varðandi að nálgast gögn sem séu forsendur bótanna, s.s. að útvega skattnúmer til að hljóta framangreindan KEA styrk. Auk þess geti verið bið eftir afgreiðslu umsókna. Þá bera gögn um aðstæður í Grikklandi með sér að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd að vinnumarkaðnum sé erfiður, m.a. í ljósi mikils atvinnuleysis í landinu.

Þá telur kærunefnd að ljóst sé af framangreindri umfjöllun, að ýmsar hindranir séu á möguleikum flóttamanna til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það sé því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd mæti ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt.

Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur hafi aðgang að endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu í Grikklandi, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum og geðheilbrigðisþjónustu. Þrátt fyrir það þá benda framangreindar upplýsingar um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi til þess að það geti verið kærendum vandkvæðum bundið að sækja þá þjónustu m.a. vegna álags á gríska heilbrigðiskerfinu og þeirra hindrana sem þau kæmu til með að þurfa að yfirstíga. Enn fremur gætu orðið tafir á því að kærendur og börn þeirra fái aðgang að þeirri þjónustu og úrræðum sem þau þurfi á að halda.

Kærendur eru hjón með fjögur ung börn á sínu framfæri. Í ljósi framangreindra aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi og þeirrar stöðu sem ríkir nú þar í landi vegna átaka við landamærin og þeirrar fordæmalausu stöðu vegna Covid-19 faraldursins sem nú er uppi, sem að mati kærunefndar gæti leitt til enn frekari aðgangshindrana að heilbrigðisþjónustu og annarri þjónustu fyrir flóttamenn, að ástæða sé til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu séu í verri aðstöðu en áður til þess að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldunni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir þeirra. Í ljósi alls þess sem að framan er rakið er það mat kærunefndar, sérstaklega m.t.t. núverandi aðstæðna í Grikklandi og framangreindra aðgangshindrana, að það sé ekki í samræmi við öryggi A, B, C og D, velferð þeirra og þroska að fara aftur til Grikklands þar sem óvissa sé með trygga framfærslu barnanna, húsnæði, heilbrigðisþjónustu og aðgang þeirra að grunnþjónustu, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Samkvæmt framangreindu er það því niðurstaða kærunefndar að fyrir hendi séu sérstakar ástæður í málum þeirra sem mæla með því að þau verði tekin til efnismeðferðar hér á landi skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. sömu laga og 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, og tilvitnuð ákvæði reglugerðar um útlendinga.

Að framangreindu virtu og með vísan til sjónarmiða um einingu fjölskyldunnar er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.  

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kærenda um endurupptöku á málum þeirra og barna þeirra.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda og barna þeirra til efnismeðferðar.

The appellants‘ request for re-examination of their cases is granted.

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicants‘ and their children‘s applications for international protection in Iceland.

 

Áslaug Magnúsdóttir

Árni Helgason                                                                                                 Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum