Hoppa yfir valmynd
17. september 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 17. september 2009

FUNDARGERÐ

Ár 2009, fimmtudaginn 17. september, var haldinn fundur í mannanafnanefnd að Neshaga 16, Reykjavík. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir og Baldur Sigurðsson en Kolbrún Linda Ísleifsdóttir var í símasambandi á fundinum. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

1.         Mál nr. 74/2009          Eiginnafn:        Lísebet  (kvk.)

  

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá telst eiginnafnið Lísebet (kvk.) hafa unnið sér hefð í íslensku máli og er því í samræmi við 1. mgr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn og d-lið vinnulagsreglna frá 14. nóvember 2006. Eiginnafnið Lísebet (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Lísebetar.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lísebet (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd eiginnafnsins Lísabet (kvk.) ásamt eignarfallsmyndinni Lísebetar, en þó ekki fyrr en tilkynning um nafngjöf hefur borist Þjóðskrá.

 

 

 

2.         Mál nr. 75/2009          Eiginnafn / ritháttur:  August  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef það brýtur í bág við önnur ákvæði 5. gr. laganna, þ.e. 2. málslið 1. mgr., 2. mgr. og 3. mgr. 5. gr.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa

átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Eiginnafnið August (kk.) er ein mynd nafnsins Ágúst, sem til er í ýmsum tungumálum og með ýmsum rithætti. Rithátturinn August samræmist ekki almennum ritreglum íslensks máls miðað við að eðlilegur íslenskur framburður nafnsins sé með á-  og –ú. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru sjö karlar skráðir með eiginnafnið August (fyrra og síðara nafn) sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna og er sá elsti þeirra fæddur árið 1959. Því er ekki hefð fyrir þessum rithætti. Eiginnafnið og rithátturinn August (kk.) uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn August (kk.) er hafnað.  

 

 

 

3.         Mál nr. 76/2009          Eiginnafn:        Evald  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður

 

Eiginnafnið Evald (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Evalds, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Evald (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

5.         Mál nr. 78/2009          Eiginnafn / ritháttur:  Marko (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: 

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef það brýtur í bág við önnur ákvæði 5. gr. laganna, þ.e. 2. málslið 1. mgr., 2. mgr. og 3. mgr. 5. gr.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa

átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Eiginnafnið Marko (kk.) er ein mynd nafnsins Markús, sem til er í ýmsum tungumálum og með ýmsum rithætti. Rithátturinn Marko samræmist ekki almennum ritreglum íslensks máls miðað við að eðlilegur íslenskur framburður nafnsins sé með –ó. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru þrír karlar skráðir með eiginnafnið Marko sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna og er sá elsti þeirra fæddur árið 1998. Því er ekki hefð fyrir þessum rithætti. Eiginnafnið (rithátturinn) Marko (kk.) uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Vegna þessa máls hefur mannanafnanefnd ákveðið að úrskurða nafnmyndina / eiginnafnið Markó (kk.) á mannanafnaskrá þar sem það nafn uppfyllir að öllu leyti ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Marko (kk.) er hafnað.

Eiginnafnið Markó (kk.) skal fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

 

6.         Mál nr. 79/2009          Eiginnafn:        Svend (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Svend er ekki ritað samkvæmt íslenskum ritreglum en samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár um fjölda Íslendinga sem bera nafnið telst það hafa áunnið sér hefð í íslensku máli samkvæmt 1. gr. vinnulagsreglna manna-nafnanefndar frá 1. júlí 2004 og uppfyllir því skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið Svend telst vera annar ritháttur eiginnafnsins Sveinn og skal fært sem slíkt á mannanafnaskrá. Eiginnafnið Svend (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Svends.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Svend (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess, Svends og sem ritmynd eiginnafnsins Sveinn (kk.).

 

 

 

--------------------------------------------

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum