Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2010 Utanríkisráðuneytið

Gagnlegur fundur Barroso og Jóhönnu í Brussel

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti í dag fund með José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Olli Rehn, núverandi yfirmanni stækkunarmála, sem mun taka við stöðu framkvæmdastjóra efnahags- og gjaldeyrismála innan Evrópusambandsins í næstu viku.

Á fundinum fór forsætisráðherra ítarlega yfir stöðu mála á Íslandi. Sérstaklega var fjallað um Icesave málið og samskipti Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ráðherra lagði áherslu á að afar óheppilegt og skaðlegt væri ef aðildarríki Evrópusambandsins tengdu Icesave-málið við aðra endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Forsætisráðherra lagði jafnframt áherslu á að lánveitingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Norðurlandanna væri mikilvæg forsenda endurreisnar efnahagslífsins á Íslandi. Staða aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið var einnig rædd og forsætisráðherra lagði áherslu á að málið fengi eðlilega meðferð.

Forsætisráðherra átti einnig fundi með yfirmönnum EFTA og ESA í Brussel.

Reykjavík 4. febrúar 2010



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum