Hoppa yfir valmynd
26. mars 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 139/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 26. mars 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 139/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19030038

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 3/2019, dags. 15. janúar 2019, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. nóvember 2018, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt fyrir kæranda þann 21. janúar 2019. Þann 18. mars 2019 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins ásamt greinargerð.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga, þar sem íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því ákvörðun var tekin.

Í greinargerð kæranda kemur fram að þann 8. mars 2019 hafi Útlendingastofnun upplýst hann um að láðst hefði að senda tilkynningu til sænskra stjórnvalda um frestun á flutningi kæranda, og að mál hans væri því fallið á fresti samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Kærandi telji því ljóst að málsatvik hafi breyst verulega frá því að úrskurður í máli hans var kveðinn upp þann 15. janúar sl. Sá frestur sem kveðið sé á um í 1. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar hafi nú runnið út og skv. 2. mgr. sömu greinar beri íslensk stjórnvöld nú ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd.

Samkvæmt framansögðu telur kærandi að hin kærða ákvörðun sem kærunefnd útlendingamála hafi staðfest sé nú óframkvæmanleg. Því beri íslenskum stjórnvöldum að beita meginreglu 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, enda eigi undantekningarregla c-liðar sömu málsgreinar ekki lengur við í málinu, og taka skuli umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Þann 14. ágúst 2018 samþykktu sænsk stjórnvöld að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd. Byggði samþykki Svíþjóðar á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Samkvæmt 1. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skal flutningur aðila til viðtökuríkis fara fram í síðasta lagi innan sex mánaða frá því að aðildarríki samþykkir beiðni um að taka aftur við viðkomandi eða frá því að endanleg ákvörðun á kærustigi liggur fyrir ef réttaráhrifum hefur verið frestað vegna kæru. Í 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar segir að fari flutningur ekki fram innan sex mánaða frestsins falli niður skylda aðildarríkisins, sem ber ábyrgð, að taka við einstaklingnum aftur og færist ábyrgðin til þess aðildarríkis sem lagði fram beiðnina.

Eins og að framan greinir samþykktu sænsk stjórnvöld endurviðtökubeiðni íslenskra stjórnvalda þann 14. ágúst 2018. Samkvæmt gögnum máls var sænskum stjórnvöldum ekki tilkynnt af hálfu Útlendingastofnunar um að kærandi hefði kært ákvörðun stofnunarinnar til kærunefndar útlendingamála. Af því leiðir að ábyrgð sænskra stjórnvalda á því að taka við umsækjanda samkvæmt ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar er fallin niður, sbr. 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar. Í ljósi framangreinds telur kærunefnd ákvæði 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga uppfyllt þar sem atvik í máli kæranda hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin í máli hans. Fellst því kærunefndin á að mál kæranda verði endurupptekið hjá nefndinni á grundvelli ákvæðisins.

Samkvæmt framansögðu er ekki fyrir hendi heimild til að krefja sænsk stjórnvöld um viðtöku á kæranda. Er því ekki unnt að synja umsókn hans um efnismeðferð, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Gögn málsins benda ekki til þess að ákvæði a- eða b-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna eigi við í máli hans. Er því niðurstaða kærunefndar útlendingamála að fella ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á efnismeðferð úr gildi og leggja fyrir stofnunina að taka mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

Samantekt

Það er niðurstaða kærunefndar að endurupptaka mál kæranda. Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála, eins og hér stendur á, að taka beri mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellants´ request for re-examination of his case is granted.The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicants application for international protection in Iceland.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Árni Helgason                                                                       Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum