Hoppa yfir valmynd
21. desember 2007 Dómsmálaráðuneytið

Dóms- og kirkjumálaráðherra tekur þátt í hátíðarhöldum í Tallinn í tilefni af stækkun Schengen-svæðisins

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra tekur í dag, föstudaginn 21. desember, þátt í hátíðarhöldum við höfnina í Tallinn, höfuðborg Eistlands, í tilefni af stækkun Schengen-svæðisins.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra tekur í dag, föstudaginn 21. desember, þátt í hátíðarhöldum við höfnina í Tallinn, höfuðborg Eistlands, í tilefni af stækkun Schengen-svæðisins. Sigla norrænir gestir ríkisstjórnar Eistlands með ferju frá Helsinki.  

Hátíðarhöldin í Tallinn eru liður í því, að staðfest er í dag að persónueftirliti sé lokið á innri landamærum níu Schengen-ríkja á landi og í höfnum og verða þau þá 24.  Hinn 30. mars 2008 fellur persónueftirlitið niður á flugvöllum. Þessi nýju Schengen-ríki eru Eistland, Lettland, Litháen, Malta, Pólland, Slóvenía, Slóvakía, Tékkland og Ungverjaland.

Í Tallinn mun fjöldi ráðamanna Evrópuríkja taka á móti ferjunni frá Helsinki. Meðal þeirra eru forseti Eistlands, Toomas Hendrik Ilves, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, José Manuel Barroso og forsætisráðherra Portúgals, sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, José Sócrates, en þeir munu, auk forsætisráðherra Finnlands o.fl., flytja ávörp við athöfnina.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum