Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2008 Dómsmálaráðuneytið

Margrét S. Frímannsdóttir sett forstöðumaður Fangelsisins Litla-Hrauni

Margrét S. Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið sett forstöðumaður Fangelsisins Litla-Hrauni tímabundið frá 1. febrúar nk. vegna leyfis Kristjáns Stefánssonar skipaðs forstöðumanns.

Fangelsið að Litla Hrauni
Fangelsið Litla-Hrauni.

Margrét S. Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið sett forstöðumaður Fangelsisins Litla-Hrauni tímabundið frá 1. febrúar nk. vegna leyfis Kristjáns Stefánssonar skipaðs forstöðumanns.

Margrét var formaður nefndar sem vann að tillögum um framtíðarrekstur Fangelsisins Litla-Hrauni og lauk nefndin störfum í nóvember síðastliðnum. Hún hefur gegnt ráðgjafarstörfum við fangelsið að undanförnu til að hrinda í framkvæmd niðurstöðum nefndarinnar. Margrét er fyrst kvenna til að gegna starfi forstöðumanns við fangelsi á Íslandi.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum