Hoppa yfir valmynd
13. desember 2018 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2019

Mánudaginn 10. desember 2018 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2019, sbr. reglugerð nr. 1025/2018.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 5.950 stk., á meðalverðinu 88 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 50 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 107 kr./stk.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 7.950 stk., á meðalverðinu 94 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 50 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 106 kr./stk.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 4.650 stk., á meðalverðinu 49 kr./stk.  Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 45 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 50 kr./stk.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 15.400 stk., á meðalverðinu 38 kr./stk.  Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 25 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 45 kr./stk.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 193.000 stk. á meðalverðinu 27 kr./stk.  Hæsta boð var 40 kr./stk. en lægsta boð var 10 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 166.250 stk. á meðalverðinu 29 kr./stk.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og  nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2019

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.300

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

900

Húsasmiðjan Blómaval ehf

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2019

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.700

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

1.300

Húsasmiðjan Blómaval ehf


Rósir janúar – júní 2019

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

261

Blómabúð Akureyrar ehf

580

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

1.159

Samasem ehf


Tryggðablóm janúar – júní 2019

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

369

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

8.631

Samasem ehf


(Annars)  afskorin blóm janúar – júní 2019

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

6.083

Blómabúð Akureyrar ehf

8.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

80.000

Grænn markaður ehf

72.167

Samasem ehf

 

Reykjavík, 13. desember 2018  

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum