Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisstofnunum úthlutað 350 milljónum króna til tækjakaupa og tæknilausna

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - myndHeilbrigðisráðuneytið

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að úthluta af safnliðum fjárlaga 270 milljónum króna til tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og 80 milljónum króna til tæknilausna sem nýtast í þágu aldraðra sem búa heima en bíða eftir hjúkrunarrými og þurfa á mikilli þjónustu að halda.

Hæsta úthlutunin til tækjakaupa, 70 milljónir króna, rennur til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands vegna tækjabúnaðar fyrir liðskiptasetrið. Heilbrigðisstofnanir Norðurlands og Austurlands fá 50 milljónir króna hvor vegna kaupa á stórum tækjum í samræmi við áætlanir og brýna þörf. Hinar stofnanirnar þrjár fá samtals 100 milljónir króna sem skiptast hlutfallslega í samræmi við fjárveitinga til sjúkrasviða þeirra. Fjármunirnir skiptast á eftirfarandi hátt:

Heilbrigðisstofnun Vesturlands       70 m.kr.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða          23 m.kr.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands      50 m.kr.

Heilbrigðisstofnun Austurlands       50 m.kr.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands         48 m.kr.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja         29 m.kr.

Heilbrigðistæknilausnir fyrir aldraða í heimahúsum

Fjöldi aldraðra sem fengið hefur færni og heilsumat og bíður þess að komast á hjúkrunarheimili dvelur á eigin heimili og þarf á mikilli þjónustu að halda. Til að auka þjónustu við þennan hóp og tryggja betur öryggi einstaklinganna geta skjáheimsóknir verið mikilvæg viðbót og auk annarra tæknilausna sem þjóna sama tilgangi og stuðla einnig að betri nýtingu starfsfólks sem sinnir hjúkrun og umönnun fólks í heimahúsum. Til að ýta undir þróun og notkun lausna sem þessara hefur ráðherra ákveðið að úthluta samtals 80 milljónum króna til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni sem skiptast svona:

Heilbrigðisstofnun Vesturlands       9,0 m.kr.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða          13,0 m.kr.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands      28,0 m.kr.

Heilbrigðisstofnun Austurlands       14,0 m.kr.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands         10,0 m.kr.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja         6,0 m.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum