Hoppa yfir valmynd
24. október 2001 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins 2001. Greinargerð 24. október 2001

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-september 2001 (PDF 24K)

Nú liggja fyrir tölur um afkomu ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins. Uppgjörið hér á eftir sýnir sjóðhreyfingar og er sambærilegt við almenn sjóðstreymisyfirlit. Tölurnar eru því ekki sambærilegar við ríkisreikning eða fjárlög ársins sem eru sett fram á rekstrargrunni.

Heildaryfirlit
Fyrstu níu mánuði ársins var handbært fé frá rekstri neikvætt um 6,9 milljarða króna, samanborið við 4,9 milljarða króna jákvæða stöðu í fyrra. Heildartekjur ríkissjóðs hækka um tæplega 10 milljarða króna frá sama tíma í fyrra, einkum vegna aukinnar innheimtu tekjuskatta. Útgjöld hækka hins vegar um 21S milljarð króna, eða 15%. Þar munar mestu um áhrif kjarasamninga og gengisþróunar eða um 5 milljörðum króna. Greiðslur til fæðingarorlofssjóðs voru 1,7 milljarðar og hækkun framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga nam einnig 1,7 milljörðum króna. Þá nemur hækkun vaxtagreiðslna um 1,4 milljörðum, sérstakar greiðslur til öryrkja nema 1,3 milljörðum króna, 1 milljarður stafar af auknum greiðslum til Tryggingastofnunar ríkisins vegna lífeyristrygginga. Þá voru 0,8 milljarðar nýttir til uppkaupa á fullvirðisrétti bænda. Rétt er að vekja athygli á að hluti af þessari hækkun kemur ekki til gjalda á rekstrargrunni á þessu ári.


Hreinn lánsfjárjöfnuður var neikvæður um 8,7 milljarða króna sem er tæplega 15 milljörðum króna lakara en í fyrra. Skýringin er, auk þess sem áður er nefnt, að á árinu 2000 komu til greiðslu 5,5 milljarðar króna vegna sölu á hlutabréfum í ríkisbönkunum á árinu 1999. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs var auk þess greiddur 10S milljarður króna í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins til að grynnka á framtíðarskuldbindingum ríkissjóðs, en samkvæmt fjárlögum 2001 er áformað að greiða til hans 15 milljarða.
Staða ríkissjóðs gagnvart Seðlabankanum versnaði um 4,9 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins.

Tekjur
Heildartekjur ríkissjóðs námu rúmlega 158 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hækkunin milli ára nemur 9,8 milljörðum, eða um 6,6%. Skatttekjur hækka um svipað hlutfall. Til samanburðar má nefna að hækkun skatttekna á sama tíma í fyrra nam 10S% og rúmlega 17% árið þar á undan.


Aukin innheimta skatta á launa-, fjármagnstekjur og hagnað, einstaklinga og fyrirtækja, skýrir að langmestu leyti tekjuauka ríkissjóðs frá fyrra ári. Hér gætir að nokkru sérstakra, tímabundinna skýringa, svo sem því að á þessu tímabili falla til launahækkanir tveggja tímabila. Auk þess koma til önnur atriði eins og áhrif álagningar skatta og endurgreiðslur vegna fyrri ára sem skekkja samanburð milli ára. Samanlagt eru skattar á tekjur og hagnað ásamt tryggingagjaldi tæplega 8 milljörðum króna umfram áætlun. Eignarskattar eru hins vegar því sem næst á áætlun.

Þróun veltuskatta er á allt annan veg, en þeir lækka um tæplega 1S milljarð króna í krónum talið frá sama tíma í fyrra og eru rúmlega 6 milljörðum undir áætlun. Þessi þróun endurspeglar umtalsverðan samdrátt að raungildi milli ára, eða sem nemur tæplega 7S%. Sem fyrr má einkum rekja þessa þróun til veru-legs sam-dráttar í neysluútgjöldum milli ára, ekki síst kaupum á bílum og ýmsum varanlegum neysluvörum, svo sem heimilistækjum. Sem dæmi má nefna að vörugjöld af inn-flutningi bifreiða hafa lækkað um meira en 40% milli ára, eða sem nemur 1,7 milljörðum króna. Vörugjöld af bensíni lækka einnig milli ára. Samanlögð áhrif þessara þátta koma fram í virðisaukaskatti, en hann er beinlínis að skila minni tekjum í krónum talið en á sama tíma í fyrra. Sú niðurstaða jafngildir um það bil 6% samdrætti að raungildi milli ára.

Gjöld
Heildargreiðslur ríkissjóðs námu rúmum 165 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins. Gjöldin hækka um 21S milljarð frá fyrra ári og vega þar sjö tilefni þyngst, sbr. umfjöllun í yfirlitskaflanum hér að framan.


Almenn mál. Útgjöld til almennra mála, hækka um tæpar 700 m.kr. eða 4,2% milli ára. Af einstökum hækkunartilefnum munar mestu um kaup á nýjum upplýsingakerfum ríkisins en 450 m.kr. eru komnar til greiðslu vegna kaupanna. Þá hækka greiðslur til utanríkisþjónustunnar um 400 m.kr. mili ára. Á móti vegur að greiðslur vegna æðstu stjórnar ríkisins lækka, m.a. vegna þess að á síðasta ári voru töluverð útgjöld vegna 1000 ára afmælis kristnitökunnar sem ekki koma til í ár. Greiðslur löggæslu- og öryggismála hækka aðeins um 100 m.kr. í heild, þrátt fyrir 540 m.kr. hækkun til reksturs löggæslu og dómstóla þar sem á móti vegur rúmlega 700 m.kr. lækkun á greiðsluþörf Ofanflóðasjóðs til byggingar snjóflóðavarnargarða.

Félagsmál. Um 60% af útgreiðslum á tímabilinu runnu til ýmissa félagsmála, svo sem fræðslu- menningar-, heilbrigðis- og tryggingamála. Útgjöld til þessa málaflokks hækka í heild um 12,7 milljarða króna milli ára. Hækkun vegna fræðslumála nam 2,2 milljörðum króna, eða 14,2% og af einstökum málum munar mestu um 400 m.kr. hækkun greiðslna til Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Fyrirséð er að útlán sjóðsins hækka umfram áætlanir á árinu vegna gengislækkunar íslensku krónunnar. Greiðslur til Háskóla Íslands hækka um 250 m.kr. Greiðslur til framhalds- og sérskóla aukast um rúman einn milljarð króna, eða 19,4% sem m.a. skýrist af viðbótaryfirvinnu eftir lok verkfalls framhaldsskólakennara, auk launahækkana í kjölfar kjarasamnings. Greiðslur vegna kirkjumála hækka um 290 m.kr. milli ára.

Framlög til heilbrigðismála nema 36,4 milljörðum króna og hækka um 3,6 milljarða króna. Þar munar mestu um rekstrarframlög til sjúkrastofnana sem hækka um rúma 2 milljarða króna, eða 11% milli ára. Þar af eru 1,3 milljarðar hjá stóru sjúkrahúsunum í Reykjavík og á Akureyri. Hlutfallslega er þó mesta hækkunin hjá öldrunar- og endurhæfingarstofnunum, 1,2 milljarðar króna, eða 21,3%. Er það að mestu í samræmi við áætlanir fjárlaga, ný hjúkrunarheimili bættust við á tímabilinu, auk þess sem daggjöld hækka og greiðslur færast meira yfir á fyrri hluta ársins.

Greiðslur almannatrygginga hækka um 5,8 milljarða, eða 21,6%. Greiðslur vegna lífeyristrygginga og bóta skv. lögum um félagslega aðstoð hækka um 2,8 milljarða milli ára. Þar munar mestu um áður greinda 1.300 m.kr. greiðslu vegna dóms Hæstaréttar í málefnum öryrkja, auk breytinga á lögum um almannatryggingar sem leiða til hækkunar. Þá hafa ný lög um fæðingarorlof leitt til 1.740 m.kr. greiðslu það sem af er árinu. Greiðslur til Atvinnuleysistryggingasjóðs hækka tæpar 200 m.kr. milli ára.

Atvinnumál. Útgjöld til atvinnumála hækka samtals um 4,2 milljarða króna, sem er 18,8% hækkun frá því í fyrra. Greiðslur til samgöngumála hækka um 1,8 milljarða króna. Þar af er 1,1 milljarðs króna. hækkun til Vegagerðarinnar og tæplega 600 m.kr. til Siglingastofnunar. Hækkanirnar eru í samræmi við vega- og hafnaáætlanir. Af öðrum tilefnum munar mestu um uppkaup ríkisins á fullvirðisrétti bænda, en 800 m.kr. eingreiðsla fór til þess verkefnis í ársbyrjun.

Vaxtagreiðslur hækka um 1,4 milljarða króna, eða 10,3%. Mestu munar um áhrif gengislækkunar krónunnar, en vaxtagjöld vegna erlendrar lántöku hækka um 1S milljarð króna. Greiðslur vaxta vegna ríkisvíxla og spariskírteina standa því sem næst í stað milli ára.

Önnur útgjöld hækka um 2,6 milljarða króna milli ára, eða 52% að mestu vegna tveggja tilefna. Greiðslur til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækka um 1,7 milljarða og greiðslur uppbóta á lífeyri sem renna til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hækka um tæpar 700 m.kr.

Lánahreyfingar
Fjármunahreyfingar voru neikvæðar um 1,8 milljarða króna fyrstu níu mánuði ársins, en á sama tíma í fyrra námu innborganir 1,2 milljörðum króna. Skýring á þessum mun kemur einkum fram í því að í janúar á síðasta ári voru innborganir vegna sölu á hlutabréfum í ríkisbönkunum 5,5 milljarðar króna.

Afborganir lána ríkissjóðs námu 22,2 milljörðum króna og eru að stærstum hluta vegna erlendra lána. Í febrúar var á innlausn flokkur spariskírteina frá árinu 1990 og hafa bréf í þeim flokki verið innleyst fyrir um 8,8 milljarða króna að innlausnarvirði, en þar af voru afborganir 4,8 milljarðar. Auk þess hafa spariskírteini verið forinnleyst úr þremur spariskírteinaflokkum fyrir 3,9 milljarða króna að innlausnarvirði. Þar af nema afborganir 2,4 milljörðum. Uppkaup með þessum hætti beinast að þeim flokkum spariskírteina sem ekki eru nægilega seljanlegir á eftirmarkaði eða stutt eftir að gjalddaga þeirra.

Ákveðið hefur verið að ráðstafa hluta lánsfjárafgangs ríkissjóðs til greiðslu lífeyrisskuldbindinga hans hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Greiðslur til sjóðsins námu 10,6 milljörðum króna samanborið við 4,5 milljarða í fyrra.

Lántökur ríkisins námu um 36,7 milljörðum króna. Þar af voru erlendar lántökur 24,8 milljarðar sem að stærstum hluta runnu til niðurgreiðslu annarra erlendra skulda. Það sem af er árinu hefur stofn ríkisvíxla stækkað um 6 milljarða króna, auk þess sem seld hafa verið ríkisbréf í nýjum 6 ára flokki fyrir um 5,7 milljarða króna.

    Efnisorð

    Hafa samband

    Ábending / fyrirspurn
    Ruslvörn
    Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum