Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2022 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greinargerð um sölu frekari eignarhluta í Íslandsbanka

Merki Íslandsbanka - mynd

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu frekari eignarhluta í Íslandsbanka. Greinargerð og fylgigögn um áformin hafa verið send fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og þess óskað að umsagnir nefndanna liggi fyrir ekki síðar en þann 2. mars nk.

Þá hefur jafnframt verið óskað eftir formlegri umsögn frá Seðlabanka Íslands um jafnræði bjóðenda, líkleg áhrif sölu á gjaldeyrismarkað, gjaldeyrisforða og laust fé í umferð.

Eftir að umsagnir nefndanna og Seðlabanka Íslands liggja fyrir verður tekin endanleg ákvörðun um hvort sölumeðferð eignarhlutarins verði hafin í samræmi við efni greinargerðarinnar. Ráðherra getur í ákvörðun sinni gert breytingar á einstökum þáttum í fyrirhugaðri sölumeðferð, m.a. að teknu tilliti til athugasemda fjárlaganefndar eða efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis við greinargerðina.

Áframhaldandi sala hluta í bankanum er í samræmi við ákvæði laga, stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, niðurstöður hvítbókar um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið og eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki.

Í eigandastefnunni segir að stuðlað skuli að því að efla og styrkja samkeppni á fjármálamarkaði og að íslensk fjármálafyrirtæki verði til framtíðar í fjölbreyttu, heilbrigðu og dreifðu eignarhaldi.

Markmiðið að draga úr áhættu, hámarka endurheimtur og stuðla að dreifðu eignarhaldi

Fyrsta skrefið varðandi sölu íslenska ríkisins á hlutum í Íslandsbanka var tekið með frumútboði á 35% hlut í bankanum og töku hlutanna í kjölfarið til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallar Íslands þann 22. júní í fyrra. Tæplega 24.000 hluthafar eignuðust hlut í bankanum, sem varð þannig fjölmennasta almenningshlutafélag á Íslandi.

Hver hlutur var seldur á 79 kr. og nam söluandvirði hlutanna 55,3 milljörðum króna. Samsvaraði markaðsvirði hlutafjár í bankanum í útboðinu því um 158 milljörðum. Var þetta stærsta frumútboð og næst stærsta almenna útboð á hlutabréfum á Íslandi. Þann 31. janúar sl. var lokaverð á hvern hlut 123,2 kr. og markaðsvirði hlutafjár í bankanum því 246,4 milljarðar króna og markaðsvirði 65% eignarhlutar ríkisins í honum þar með 160,2 milljarðar.

Helstu markmið með áframhaldandi sölu eru eftirfarandi:

  • að minnka áhættu ríkisins af svo stórum eignarhlut í fjármálakerfinu;
  • að efla virka samkeppni á fjármálamarkaði;
  • að hámarka endurheimtur ríkissjóðs af eignarhaldinu og sölu á hlutum;
  • að stuðla að fjölbreyttu, heilbrigðu og dreifðu eignarhaldi til lengri tíma;
  • að auka fjárfestingarmöguleika fyrir einstaklinga og fagfjárfesta; og ekki síst
  • að minnka skuldsetningu eða auka svigrúm ríkisins til samfélagslega arðbærra fjárfestinga.

Fylgigögn

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum