Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fjárfesting í röddum kennara, skólastjórnenda og annars starfsfólks skóla um allt land

Mennta- og barnamálaráðherra í samvinnu við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga, óskar eftir umsóknum um styrki frá kennurum, skólastjórnendum og öðru starfsfólki skóla á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi sem hafa áhuga á því að taka virkan þátt í samráði vegna ritunar frumvarps til nýrra laga um skólaþjónustu. Markmið með veitingu styrkjanna er að finna áhugasama aðila sem vinna með börnum á hverjum degi um land allt, vilja deila sinni reynslu og röddum til uppbyggingar nýrrar skólaþjónustu á Íslandi, og veita þeim og þeirra skólum svigrúm til þess.

Úthlutun styrkja verður á grundvelli tillagna nefndar sem skipuð er fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og stjórnar Kennarasambands Íslands. Miðað er við að styrkfjárhæðir séu á bilinu 200.000 kr. til 3.000.000 kr. og fer upphæð styrkja eftir umfangi og eðli þátttöku, t.d. vegna greiðslu launa í afleysingum fyrir starfsmann sem hyggst taka þátt í samráði í ákveðinn tíma, vinnu starfsmanna að samráði utan hefðbundins vinnutíma og ferðalaga. Samráðið mun fara fram á tímabilinu janúar til maí 2023.

Hafir þú áhuga á þátttöku í samráðinu þá getur þú sótt um hér:

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að send póst á [email protected]

Vakin er athygli á því að skólaþjónustustarfsfólk sem hefur áhuga á að taka þátt í þessari vinnu getur einnig sótt um. Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrestinn til mánudagsins 23. janúar 2023.

Uppfært 17.01.23 kl. 15:38
Uppfært 11.01.23 kl. 16:10

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum