Hoppa yfir valmynd
15. mars 2021 Utanríkisráðuneytið

Sex milljónir barna í Sýrlandi þekkja ekkert nema stríð

Ljósmynd: UNICEF - mynd

„Á hverjum einasta degi síðastliðin tíu ár hafa gróf brot verið framin á réttindum barna. Þau hafa verið drepin, særð alvarlega, notuð í vopnuðum átökum og skólarnir þeirra sprengdir í loft upp. Ótal börn hafa drukknað á flótta frá hörmungunum. Börn bera aldrei ábyrgð í stríði en það eru þau sem bera mestan skaða af átökunum,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi.

Í dag, 15. mars, eru tíu ár liðin frá upphafi Sýrlandsstríðsins. „Áratugur af árásum, efnahagshrun og heimsfaraldur kórónaveirunnar hafa skapað eina verstu mannúðarkrísu heimsins í dag sem heldur áfram að bitna verst á börnunum. Eftir 10 ár af stríði þurfa um 90% barna í Sýrlandi á aðstoð að halda sem er um 20% aukning á einu ári. Á þessum tíu árum hafa sex milljónir barna fæðst í Sýrlandi og í flóttamannabúðum í nágrannaríkjunum. Þau þekkja ekkert nema stríð,“ segir í frétt frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.  

Steinunn segir börnin eiga minningar frá síðustu árum sem engin börn ættu að þurfa að upplifa –  fallnir ástvinir, skólinn sem er ekki lengur til og hættulegur flótti yfir til Evrópu.

UNICEF hefur veitt milljónum barna frá Sýrlandi neyðarhjálp síðan stríðið hófst. Það hefði ekki verið hægt án víðtæks stuðnings almennings um allan heim, þar á meðal á Íslandi – bæði frá heimsforeldrum og þeim sem stutt hafa neyðarsöfnun UNICEF.

Hægt er að hjálpa með því að senda sms-ið STOPP í nr 1900 (1.900 krónur) eða með því að styðja hér.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum