Hoppa yfir valmynd
30. ágúst 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum frá Evrópusambandinu á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 16. september til 31. desember 2021

  - myndSebastian Holgado / Unsplash

Fimmtudaginn 19. ágúst 2021, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 600/2021 fyrir tímabilið 16. september til 31. desember 2021. Tollkvótum var nú í fyrsta sinn úthlutað í gegnum vefkerfið tollkvóti.is. Samtals bárust 24 gild tilboð í tollkvótann.

 

Nautgripakjöt í vörulið 0201/0202. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 548.050 kg. á meðalverðinu 173 kr./kg.  Hæsta boð var 455 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 232.000 kg. á meðalverðinu 328 kr./kg.

 

Svínakjöt í vörulið 0203. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 752.003 kg. á meðalverðinu 124 kr./kg.  Hæsta boð var 252 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 234.000 kg. á meðalverðinu 216 kr./kg.

 

Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 959.006 kg á meðalverðinu 298 kr./kg.  Hæsta boð var 460 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 286.000 kg á meðalverðinu 421 kr./kg.

 

Alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið ex0207. Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals 155.000 kg á meðalverðinu 101 kr./kg.  Hæsta boð var 249 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 66.000 kg á meðalverðinu 228 kr./kg.

 

Kjöti og ætir hlutar af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;... í vörulið 0210. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;..., samtals 105.100 kg. á meðalverðinu 41 kr./kg. Hæsta boð var 301 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 34.000 kg. á meðalverðinu 123 kr./kg.

 

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 333.000 kg. á meðalverðinu 386 kr./kg. Hæsta boð var 850 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 126.000 kg. á meðalverðinu 714 kr./kg.

 

Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Sjö umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 403.400 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 600/2021 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 76.000 kg., til átta fyrirtækja.

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

 

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... úr vörulið 1601, samtals 209.700 kg. á meðalverðinu 93 kr./kg.  Hæsta boð var 401 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá ellefu fyrirtækjum um innflutning á 84.000 kg. á meðalverðinu 215 kr./kg.

 

Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 411.500 kg. á meðalverðinu 240 kr./kg.  Hæsta boð var 601 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 134.000 kg. á meðalverðinu 408 kr./kg.

 

Úthlutunin er sú þriðja og síðasta á þessu ári og voru alls 3.812 tonnum af tollkvóta úthlutað á árinu fyrir innflutning á kjöti, ostum og unnum kjötvörum frá ríkjum Evrópusambandsins. Þar með er innleiðingu aukins tollkvóta á grundvelli samnings Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur sem tók gildi 1. maí 2018 lokið. Á myndinni að neðan má sjá þróun magns tollkvóta á ársgrundvelli sl. fjögur ár auk þróunar á vegnu meðalútboðsgjaldi. Meðalútboðsgjald hefur lækkað þónokkuð samhliða auknum tollkvótum enda er líklegra að lægri tilboð séu samþykkt með auknu magni í núgildandi útboðsfyrirkomulagi. Samanlagt útboðsgjald sem innheimt hefur verið á tímabilinu hefur þannig haldist nokkuð milli ára þrátt fyrir að tollkvótar hafi ríflega tvöfaldast.

ESB tollkvótar - innleiðing aukinna tollkvóta og meðalútboðsgjald

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

 

Kjöt af nautgripum, nýtt, kælt eða fryst, 0201/0202

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

20.000

Aðföng

25.000

Danól ehf

92.950

Ekran ehf

10.000

Garri ehf

35.000

Innnes ehf

26.000

Kjötmarkaðurinn ehf

6.000

Krónan hf

50

Mata ehf

10.000

Samkaup hf

7.000

Sælkeradreifing ehf

 

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst, 0203 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

5.000

Danól ehf

53.571

Ekran ehf

36.000

Kjarnafæði hf

4.000

Kjötmarkaðurinn ehf

75.429

Mata ehf

60.000

Stjörnugrís ehf

 

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, 0207

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

89.823

Ekran ehf

2.000

Garri ehf

66.946

Innnes ehf

4.000

Kjötmarkaðurinn ehf

86.231

Mata ehf

20.000

Stjörnugrís ehf

17.000

Sælkeradreifing ehf

 

Kjöt af alifuglum nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu ex0207 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

63.000

Ekran ehf

3.000

Krónan hf

 

Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. 0210 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

10.000

Aðföng hf

1.000

Danól ehf

2.400

Ekran ehf

1.000

Garri ehf

1.500

Innnes ehf

100

Karl K. Karlsson – Bakkus ehf

7.000

Krónan ehf

1.000

Samkaup hf

6.000

Stjörnugrís ehf

4.000

Sælkeradreifing ehf

 

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

40.000

Aðföng

1.000

Garri ehf

25.000

Innnes ehf

8.000

Krónan hf

10.000

Mjólkursamsalan

36.000

Natan &Olsen

3.500

Samkaup sf

2.500

Sælkeradreifing ehf

 

Ostur og ystingur ex 0406 Úthlutun gerð á gr.v. 5. gr. reglugerðar nr. 600/2021

Úthlutað magn (kg)

Tilboðsgjafi

11.400

Danól ehf

11.400

Innnes ehf

11.400

Krónan hf

3.000

Mata ehf

11.400

Mjólkursamsalan

11.400

Samkaup hf

10.000

Stjörnugrís ehf

6.000

Sælkeradreifing ehf

 

Pylsur og þess háttar vörur 1601

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

10.000

Aðföng

1.000

Danól ehf

3.000

Ekran ehf

2.200

Family Ink ehf

500

Innnes ehf

800

KFC ehf

2.000

Krónan hf

500

Karl K. Karlsson – Bakkus ehf

23.000

Market ehf

40.000

Mini Market ehf

1.000

Sælkeradreifing ehf

 

Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

40.000

Aðföng

6.000

Danól ehf

7.000

Ekran ehf

50.000

Innnes ehf

5.000

KFC ehf

7.500

Mini Market ehf

1.500

Nautica ehf

5.000

Stjarnan ehf

12.000

Sælkeradreifing ehf

 

Reykjavík, 24. ágúst 2021

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum