Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2014 Innviðaráðuneytið

Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 19. mars síðastliðinn um endurskoðaða áætlun um úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014 á grundvelli 3. gr.  reglugerðar nr. 242/2014.

Við endurskoðunina er tekið tillit til breytinga á lögheimili þjónustuþega miðað við 1. janúar 2014, endanlegs útsvarsstofns sveitarfélaga vegna tekna ársins 2012 og áætlunar um útsvarstekjur sveitarfélaga á árinu 2014.

Áætluð útgjaldaþörf þjónustusvæða/sveitarfélaga nemur samtals 12.650 milljónum króna á árinu 2014. Þar af nemur áætlun útsvarstekna vegna 0,25% hlutdeildar þjónustusvæða/sveitarfélaga í útsvarsstofni vegna þjónustu við fatlað  fólk 2.528 m.kr. Mismunur áætlaðrar útgjaldaþarfar og áætlaðra útsvarstekna þjónustusvæða/sveitarfélaga eru áætluð almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014 og nema þau samals 10.122 m.kr.

Jafnframt fer fram leiðrétting á framlögum ársins 2012 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars ársins 2012 og kemur leiðréttingin til frádráttar eða viðbótar áætluðum almennum framlögum ársins 2014.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,99% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum