Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2014 Innviðaráðuneytið

Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2014

Innanríkisráðherra hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 19. mars síðastliðinn um endurskoðaðar áætlanir um úthlutanir framlaga á árinu 2014:

Útgjaldajöfnunarframlög

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um endurskoðaða áætlun um úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga fyrir árið 2014, skv. 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 960/2010. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi og íbúafjölda í sveitarfélögum 1. janúar 2014.

Að tillögu ráðgjafarnefndar nemur áætluð heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár 6.050 milljónum króna og er um 300 m.kr. hækkun á heildarúthlutun framlaganna að ræða frá fyrri áætlun. Til úthlutunar nú hafa komið framlög samtals að fjárhæð 5.875 m.kr. Þar af nema framlög vegna skólaaksturs í dreifbýli 575 m.kr. Í desember koma til úthlutunar og greiðslu viðbótarframlög að fjárhæð allt að 175 m.kr. vegna íþyngjandi kostnaðar sveitarfélaga umfram tekjur af skólaakstri úr dreifbýli á árinu 2014.

Úthlutuð framlög koma til greiðslu mánaðarlega með jöfnum greiðslum. Af hverri mánaðarlegri greiðslu er haldið eftir 10%. Uppgjör framlaganna fer fram í desember.

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um endurskoðaða áætlun um úthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla fyrir árið 2014, skv. 3. gr. reglugerðar um jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla nr. 351/2002. Við  endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna ársins 2012 og áætlun um útsvarstekjur sveitarfélaga á árinu 2014. Jafnframt var áætlunin uppfærð hvað varðar fjölda íbúa á grunnskólaaldri í hverju sveitarfélagi 1. janúar 2014.

Að tillögu ráðgjafarnefndar nemur áætluð heildarúthlutun  almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla í ár 5.785 m.kr. Þar af eru leiðréttingar á framlögum ársins 2012 að fjárhæð 60 m.kr.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar.

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um endanlega úthlutun  framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á grunnskólaaldri, skv. 4. gr. reglugerðar nr. 351/2002.

Að tillögu ráðgjafarnefndar nemur heildarúthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í ár  um 1.857  m.kr. Þar af nemur framlag til Reykjavíkurborgar vegna reksturs sérskóla og sérdeilda um 1.010 m.kr.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega með jöfnum greiðslum.  

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um endurskoðaða áætlun um úthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2014, sbr. reglugerð nr. 80/2001 með síðari breytingum. Á grundvelli fjárlaga fyrir árið 2014 nemur áætlað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna um 3.403 m.kr.

Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélögum framlög fyrirfram sem nema 60% af áætluðum framlögum ársins eða um 2.042 m.kr. með fimm jöfnum greiðslum mánuðina febrúar til júní. Uppgjör framlaganna á  árinu 2014 fer fram mánuðina júlí, ágúst og september á grundveli upplýsinga frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts frá 31. desember 2013, upplýsinga um álagningarhlutföll fasteignaskatts á árinu 2014 og upplýsinga um veitta afslætti sveitarfélaga af fasteignaskatti á árinu 2014.

Framlög vegna greiðslu sveitarfélaga á almennum og sérstökum húsaleigubótum

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um hækkun á áætluðu greiðsluhlutfalli Jöfnunarsjóðs vegna greiðslu sveitarfélaga á almennum húsaleigubótum á árinu 2014 úr 64% í 66%.

Sveitarfélögin áætla að  heildargreiðslur þeirra á almennum húsaleigubótum nemi um 4.571 m.kr. á árinu 2014. Um er að ræða 6,8% hækkun á greiðslum bótanna sé tekið mið af raungreiðslum sveitarfélaga á árinu 2013.

Við hækkun á áætluðu greiðsluhlutfalli sjóðsins úr 64% í 66% hækka áætluð framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga vegna almennra húsaleigubóta úr  2.926 m.kr. í 3.017 m.kr. eða um 3,1%.

Í ársbyrjun var tekin upp sú nýbreytni að greiða tvær mánaðarlegar innborganir inn á framlag ársfjórðungsins vegna almennra húsaleigubóta. Uppgjör fyrir viðkomandi ársfjórðung fer fram eigi síðar en 20. apríl, 20. júlí, 20. október og 20 janúar.

Endurskoðuð áætlun sveitarfélaga um heildargreiðslur sérstakra húsaleigubóta nemur 1.320 m.kr. á árinu 2014. Á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga um húsaleigubætur frá 1. apríl 2008 nemur greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs 60% og  framlög sjóðsins til sveitarfélaga vegna greiðslu þeirra á sérstökum húsaleigubótum því um 792 m.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum